Í apríl sl. fengu leikskólarnir Andabær og Klettaborg styrk úr Sprotasjóði til að vinna sameiginlegt þróunarverkefni sem kallast „STEAM og leiðsagnarmat – Þróun námsmenningar”.
Verkefni leikskólanna Klettaborgar og Andabæjar miðar að því að þróa og innleiða STEAM kennslu. Áhersla er lögð á að skapa lærdómsumhverfi starfsfólks og barna þar sem börn læra í gegnum leik, rannsóknir og fjölbreytt skapandi verkefni sem tengja og sameina vísindi, tækni, verkfræði, listir og stærðfræði. Í verkefninu verða áherslur STEAM tengdar með markvissum hætti við útikennslu skólanna. Samhliða innleiðingu á STEAM-kennsluháttum þá á að þróa námsmat sem sýnir ferli náms sem á sér stað hjá börnum, þar sem virkni þeirra, þátttaka og eigin sjónarhorn eru í forgrunni. Börnin taka þátt í matsferlinu með því að endurspegla upplifun sína, sýna eigið nám í verki og taka þátt í samtali um eigin framfarir. Þannig styrkir verkefnið bæði faglega þróun kennara og dýpkar skilning barna á eigin námi.
3. september sl. hittist starfsfólk Andabæjar og Klettaborgar á sameiginlegum starfsmannafundi þar sem við fengum fræðslu um STEAM frá Signýju Óskarsdóttur forstöðukonu STEAM Borgarbyggð. 23. September nk. mun starfólk leikskólanna hittast aftur á sameiginlegum skipulagsdegi þar sem við fáum annars vegar fræðslu frá Sabínu Steinunni Halldórsdóttur um hreyfifærni, hreysti og skynþroska barna í náttúrunni og hins vegar frá Önnu Magneu Hreinsdóttur um leiðsagnarmat.
Við starfsfólk höfum miklar væntingar til þess að þetta verkefni styrki lærdómssamfélið í Andabæ og auki samstarf á milli leikskóla í sveitafélaginu.
Meðfylgjandi eru myndir frá starfsmannafundinum 3. september.

