Forsíða

Leikskólinn Andabær er staðsettur við Arnarflöt 2 á Hvanneyri og var upphaflega stofnaður af foreldrum í byrjun árs 1981. Skólinn er vel staðsettur í umhverfi kletta og fallegrar náttúru sem býður upp á skemmtilega upplifun og reynslu sem nýtt er í námi barnanna.

Leikskólinn er þriggja deilda leikskóli og heita deildarnar Goðheimar, Álfheimar og Hulduheimar. Skólinn rúmar um 65 börn og hefur verið hægt að taka inn börn inn frá því fæðingarorlofi lýkur.

Helstu verkefni skólans eru; Leiðtogaverkefnið „the leader in me“, Grænfáninn, Heilsustefnan, heilsueflandi leikskóli og Réttindaskóli UNICEF.

Einkunnarorð leikskólans eru, leikur, gleði og vinátta.