Leikskólinn vill færa Kvenfélaginu 19. júní innilegar þakkir fyrir höfðinglega gjöf, en félagið gaf leikskólanum svokallað Bambahús.
Áformað er að nýta Bambahúsið til ræktunar með börnunum, þar sem þau fá tækifæri til að kynnast náttúrunni á lifandi og skapandi hátt. Með því að taka þátt í gróðursetningu, umhirðu plantna og uppskeru læra börnin um ferli náttúrunnar, ábyrgð og sjálfbærni.
Slík verkefni auka skilning barnanna á umhverfi sínu og styðja við fjölbreytt og lærdómsríkt leikskólastarf.
Planið er svo að helluleggja í kringum húsið og inni í því þá verður það alveg tilbúið.
Við erum afar þakklát fyrir stuðning Kvenfélagsins 19. júní og það góða starf sem félagið sinnir í þágu samfélagsins.

