Opinn dagur í Grunnskólanum í Borgarnesi

Miðvikudaginn 6. maí verður opinn dagur í Grunnskólanum í Borgarnesi kl. 10:00-13:00. Gestum er boðið að sjá fjölbreyttar og skemmtilegar sýningar sem nemendur skólans hafa unnið að í vetur. Einnig verður kaffisala á vegum 9. bekkjar en allur ágóði rennur í ferðasjóð nemenda.

Verið hjartanlega velkomin!

Smellið hér til að sjá auglýsingu

Smellið hér til að sjá dagskrá