Þann 17. apríl sl. var hin árlega Stærðfræðikeppni grunnskóla á Vesturlandi haldin hátíðleg. Fjölbrautarskóli Vesturlands stendur fyrir keppninni en í ár tóku 114 nemendur þátt. Nemendurnir komu úr sex skólum af vesturlandi en hlotið var verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum árgangi fyrir sig, þ.e. 8, 9 og 10. bekk Birna Hlín Guðjónsdóttir stærðfræðikennari á unglingastigi Grunnskólans í Borgarnesi …
Opinn dagur
Miðvikudaginn 6. maí var opinn dagur haldinn í Grunnskólanum í Borgarnesi þar sem fjölbreytt og líflegt skólastarf var í forgrunni. Á dagskránni voru meðal annars glæsileg söngatriði og tískusýning í sal skólans sem vöktu mikla ánægju meðal gesta. 🌺 Í bekkjarstofum skólans var unnið að fjölbreyttum verkefnum og gestum gafst tækifæri til að taka þátt í skólastarfinu með nemendum. Nemendur …
Opinn dagur í Grunnskólanum í Borgarnesi
Miðvikudaginn 6. maí verður opinn dagur í Grunnskólanum í Borgarnesi kl. 10:00-13:00. Gestum er boðið að sjá fjölbreyttar og skemmtilegar sýningar sem nemendur skólans hafa unnið að í vetur. Einnig verður kaffisala á vegum 9. bekkjar en allur ágóði rennur í ferðasjóð nemenda. Verið hjartanlega velkomin! Smellið hér til að sjá auglýsingu Smellið hér til að sjá dagskrá
Stóra upplestrarkeppnin 2026
Stóra upplestrarkeppnin haldin í Borgarnesi Þann 21. apríl sl. var Stóra upplestrarkeppnin á Vesturlandi haldin með hátíðlegum hætti í Grunnskólanum í Borgarnesi. Alls tóku fimm skólar þátt í keppninni, þ.e. Auðarskóli, Grunnskóli Borgarfjarðar, Grunnskólinn í Borgarnesi, Heiðarskóli og Reykhólaskóli. Keppendur voru 15 talsins og því hver skóli með 3 fulltrúa. Keppnin var þrískipt og reyndi á fjölbreytta lestrarhæfni nemenda. Í …
Örsaga úr skólastarfi
Þórarinn Torfi smíðakennari gaf út lag um dóttur sína 3 apríl s.l. og er það Eva kona hans sem syngur. Lagið er samið fyrir rúmlega 20 árum og er rólegt og notalegt. En með laginu vantaði mynd til að kynna lagið og þegar Tóti og Anna Sigríður Guðbrandsdóttir myndlistarkennari fóru að spjalla kom upp sú hugmynd að hafa keppni í …
Undankeppni
Undankeppni fyrir Stóru Upplestrarkeppnina hjá 7. bekk fór fram í sal Grunnskólans í Borgarnesi fimmtudaginn 9. apríl. Nemendur 7. bekkjar lásu þar texta úr bókinni Leyndardómur ljónsins eftir Brynhildi Þórarinsdóttur, ásamt því að flytja tvö ljóð að eigin vali. Það stóðu sig allir frábærlega, en tveir keppendur, ásamt einum varamanni voru valdir áfram til að taka þátt í lokakeppninni sem …
Áríðandi!
🔴 Áríðandi tilkynning – fimmtudagur 26. mars ⚠️ Appelsínugul veðurviðvörun (rok og stórhríð) er í gildi. ❌ Skólastarf fellur niður frá kl. 08:00–14:30. 🌦️ Gert er ráð fyrir að veðrið gangi niður um kl. 13:00. 🎉 Árshátíð verður haldin samkvæmt áætlun: Nemendur mæta kl. 16:00 🚌 Akstur verður óbreyttur 👉 Ef eitthvað er óljóst er hægt að hafa samband við …
Snjallmenni Borgarbyggðar
Lilja Björg og Viktor Ingi frá skrifstofu Borgarbyggðar kynntu fyrir nemendum 8., 9.og 10.bekkjar, hönnunarverkefni um nafn og persónu snjallmennis Borgarbyggðar. Allir nemendur á unglingastigi í GB og GBF, auk nemenda í MB, geta tekið þátt í þessu skemmtilega verkefni, fundið nafn og útlit sem gæti hentað snjallmenninu. Markaðsstofa verður svo fengin til að hanna vinningstillöguna og auðvitað fær höfundurinn …








