Stóra upplestrarkeppnin 2026

Stóra upplestrarkeppnin haldin í Borgarnesi

Þann 21. apríl sl. var Stóra upplestrarkeppnin á Vesturlandi haldin með hátíðlegum hætti í Grunnskólanum í Borgarnesi. Alls tóku fimm skólar þátt í keppninni, þ.e. Auðarskóli, Grunnskóli Borgarfjarðar, Grunnskólinn í Borgarnesi, Heiðarskóli og Reykhólaskóli. Keppendur voru 15 talsins og því hver skóli með 3 fulltrúa.

Keppnin var þrískipt og reyndi á fjölbreytta lestrarhæfni nemenda. Í fyrstu umferð lásu keppendur textabrot eftir Ólafur Páll Jónsson. Í annarri umferð lásu þeir ljóð af fyrirfram ákveðnum lista, en í þriðju og síðustu umferð völdu nemendur ljóð að eigin vali eftir ólík ljóðskáld.

Framkoma og frammistaða keppenda var til fyrirmyndar og ljóst að mikil vinna hafði verið lögð í undirbúning. Dómarar keppninnar voru þau Fjóla Benediktsdóttir, Stefán Broddi Guðjónsson og Sævar Ingi Jónsson.

Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin og urðu úrslit eftirfarandi:

1.sæti: Hekla Isabel Back (Grunnskólinn í Borgarnesi)
2. sæti: Ísabella Rós Pétursdóttir (Heiðarskóli)
3. sæti: Jón Stormur Indriðason (Grunnskólinn í Borgarnesi)

Við óskum öllum keppendum hjartanlega til hamingju með glæsilega frammistöðu og sigurvegurum sérstaklega með frábæran árangur.