Opinn dagur

Miðvikudaginn 6. maí var opinn dagur haldinn í Grunnskólanum í Borgarnesi þar sem fjölbreytt og líflegt skólastarf var í forgrunni. Á dagskránni voru meðal annars glæsileg söngatriði og tískusýning í sal skólans sem vöktu mikla ánægju meðal gesta. 🌺

Í bekkjarstofum skólans var unnið að fjölbreyttum verkefnum og gestum gafst tækifæri til að taka þátt í skólastarfinu með nemendum. Nemendur fengu jafnframt að kynna verkefni sín og sýna afrakstur vinnu sinnar í vetur. Í tilefni sveitarstjórnarkosninga stóðu nemendur í 5. bekk fyrir kosningum stjórnmálaflokka sem þau höfðu sjálf stofnað.

Nemendur í 9. bekk sáu um kaffisölu og rann allur ágóði í ferðasjóð nemenda. ☕️

Við í Grunnskólanum í Borgarnesi viljum færa öllum þeim sem sáu sér fært að mæta á opna húsið kærar þakkir. 🌞