Þann 17. apríl sl. var hin árlega Stærðfræðikeppni grunnskóla á Vesturlandi haldin hátíðleg. Fjölbrautarskóli Vesturlands stendur fyrir keppninni en í ár tóku 114 nemendur þátt. Nemendurnir komu úr sex skólum af vesturlandi en hlotið var verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum árgangi fyrir sig, þ.e. 8, 9 og 10. bekk
Birna Hlín Guðjónsdóttir stærðfræðikennari á unglingastigi Grunnskólans í Borgarnesi fylgdi nemendum á keppnina á Akranesi. Deildarstjóri stærðfræðideildar fjölbrautarskólans, Sigríður Ragnarsdóttir sá um skipulag og framkvæmd keppninnar, ásamt stærðfræðikennurum skólans. Norðurál sá um að styrkja keppnina með verðlaunafé.
Hér eru nöfn þeirra keppenda sem lentu í þremur efstu sætunum í hverjum árgangi.
8. bekkur
1.sæti – Daði Rafn Reynisson úr Grundaskóla á Akranesi
2. sæti – Ísarr Myrkvi Runólfsson úr Grundaskóla á Akranesi
3. sæti – Katla Lind Björnsdóttir úr Brekkubæjarskóla á Akranesi
9. bekkur
1.sæti – Einar Orri Brandsson úr Grundaskóla á Akranesi
2. sæti – Ferdinand August Knappe úr Grunnskólanum í Borgarnesi
3. sæti – Sigfús Björn Jónsson úr Grunnskólanum í Borgarnesi
10. bekkur
1.sæti – Tómas Pálmi Freysson úr Brekkubæjarskóla á Akranesi
2. sæti – Kristján Mar Traustason úr Grunnskólanum í Snæfellsbæja
3. sæti – Heiðar Smári Ísgeirsson úr Grunnskólanum í Borgarnesi

Mynd tekin af Birnu Hlín Guðjónsdóttir

Mynd tekin af vefsíðu Fjölbrautarskóla Vesturlands
