
Mauraverkefni
Nemendur á Varmalandi voru svo heppnir að fá að taka þátt í verkefninu „Ants in Action“í samstarfi við leikskólann Hraunborg.
„Ants in Action“ er samstarfsverkefni á vegum rannsóknarhópsins Maurar á Íslandi sem miðar að því að kynna líffræði maura, náttúruna og samvinnu fyrir leikskólabörnum um allt land. Verkefnið nýtir lífshætti maura sem skapandi og lifandi kennslutæki til að efla umhverfisvitund og samvinnu á leikskólastigi.
Vikuna 7.-11. september fengu krakkarnir maurabú í heimsókn sem þau gátu fylgst með og fræðst um. Verkefninu fylgdi bókin Matti og Maurún sem fjallar um strák sem finnur maurabú og vingast við maurana. Nýttist sú bók vel í Byrjendalæsinu. Voru allir mjög ánægðir með þessa skemmtilegu heimsókn og þökkum við leikskólanum Hraunborg kærlega fyrir að bjóða okkur að vera með.