Réttarstemning á Varmalandi

Nemendur 3. – 4.bekkjar Varmalandi fengu skemmtilegt tækifæri til að upplifa íslenska sveitamenningu þegar þeir fóru í Þverárrétt. Veðrið lék við okkur og stemningin var frábær.

Krakkarnir fylgdust áhugasamir með kindunum og fengu að kynnast því hvernig réttir fara fram. Sumir tóku virkan þátt í að draga féð í dilka og aðstoða við að reka það á meðan aðrir fylgdust spenntir með úr öruggri fjarlægð.

Það var gaman að sjá áhugann og gleðina hjá nemendum og frábært að fá að upplifa saman þessa skemmtilegu og rótgrónu íslensku hefð.