Lestrarátaki yngsta stigsá Varmalandi er nú lokið og hafa nemendur staðið sig afar vel við heimalesturinn.
Fyrir hverjar 15 mínútur sem lesnar voru heima fengu nemendur eitt laufblað. Þau fengu svo að lita laufblöðin í fallegum haustlitum, klippa þau út og skreyta veggi bókasafnsins.
Það er gaman að sjá hversu mikinn metnað nemendur hafa lagt í lesturinn og verkefnið.
Við óskum nemendum innilega til hamingju með frábært lestrarátak og þökkum þeim fyrir að hjálpa til við að gera bókasafnið enn fallegra.
