Í vetur hefur verið mikið samstarf á milli leikskólans Andabæjar og Grunnskóla Borgarfjarðar Hvanneyrardeildar. Nemendur leikskólans hafa komið í kennslustundir í skólanum, og nemendur grunnskólans farið út í leikskóla. Núna fengu nemendur grunnskólans boð frá leikskólanum að koma og skoða maurabú sem þeir höfðu fengið að láni frá Marco sem hefur starfað við að rannsaka maura á Íslandi. Nemendur fóru í þremur hópum út í leikskóla og fengu þar kynning á maurabúinu hjá Sigurbjörgu Þórunni og gátu skoðað maurana með smásjá. Þetta vakti mikinn áhuga hjá nemendum og voru þau með fjöldann allan af spurningum sem Sigurbjörg svaraði eftir bestu getu. Einna helst þótti þeim merkilegt að það væru bara kvenkyns maurar í búinu þar sem þær væru svo duglegar að vinna á meðan karlarnir vildu bara borða og fljúga svo burt.
Tveir hópar fengu að sjá þegar maurarnir fengu sykurvatn að borða og fylgdust með þegar þeir hópuðust í kringum dropann að drekka.

