Í mars héldu nemendur GBf á Hvanneyri árshátíðina sína. Þau settu Dýrin í Hálsaskógi á svið og voru rosalega flott. Miklar æfingar voru búnar að vera og höfðu allir lagt hart að sér við að læra textann sinn og æfa söngvana. Að leika í leikriti þýðir stórt skref út fyrir þægindarammann fyrir marga og er þetta virkilega góð æfing í hugrekki og tjáningu. Í svona ferli reynir líka mikið á samvinnu, tillitsemi og umburðarlyndi gagnvart öðrum. Sköpunarhæfileikar þeirra fá einnig að njóta sín því þau búa sviðsmyndina til sjálf. Sýningin tókst svo vel að félag eldri borgara á svæðinu báðu um sýningu fyrir sig sem okkur var ljúft og skylt að verða við og var það annar leiksigur. Stórkostlegir leikarar hér á ferð!

