Dagana 17. og 18.apríl s.l. var seinni smiðjuhelgi skólaársins haldin á Kleppjárnsreykjum. Að þessu sinni bættust nemendur frá Grunnskólunum á Drangsnesi og Hólmavík í hópinn en sem fyrr voru nemendur frá Auðarskóla og Reykhólaskóla auk nemenda Gbf þátttakendur í smiðjuvinnunni.
Þær smiðjur sem í boði voru : Blak, reiðtygjagerð, leiklist, förðun, myndlist og hestamennska.
Nemendur nutu sín í vinnu í sínum smiðjum og einnig samveru með jafnöldrum sínum. Flestir gistu í skólanum og mönnuðu foreldrar gæsluvaktir bæði um kvöldið og nóttina.
Ánægjuleg vinnuhelgi sen gaf nemendum tækifæri til að takast á við fjölbreytt verkefni sem ekki eru allajafna í boði í hefðbundnu skólastarfi.

