Nú styttist í skólasetningu grunnskólanna

Nú er farið að styttast í skólabyrjun hjá grunnskólunum. Grunnskóli Borgarness verður settur í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi mánudaginn 23. ágúst og hefst athöfnin kl. 13.00. Allir velkomnir. Að skólasetningu lokinni hitta nemendur umsjónarkennara sína í skólanum. Skólarútan fer úr Sandvík kl. 12.40 og til baka frá biðskýli í Skallagrímsgötu kl. 14.15. Kennsla hefst svo samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 24. ágúst. Innkaupalistar …

Skráning nýnema í Tónlistarskólann

Skráning nýnema í Tónlistarskóla Borgarfjarðar fyrir veturinn 2010 – 2011 hefst fimmtudaginn 19. ágúst næstkomandi. Þá verður tekið við nýjum umsóknum í Tónlistarskólanum að Borgarbraut 23 frá kl. 14.00-17.00 og í síma 437 2330 eða á netfangið tskb@simnet.is  

Menntaskóli Borgarfjarðar

Föstudaginn 20. ágúst næstkomandi kl. 09.00 koma nýnemar við Menntaskóla Borgarfjarðar til starfa en þá hefst skólahald með sameiginlegum morgunverði nýnema og starfsfólks. Í framhaldi morgunverðarins fá nýnemar afhentar stundaskrár og fleiri gögn varðandi skólastarfið. Einnig fá nemendur afhentar fartölvur.Eldri nemendur koma til starfa sama dag kl. 13.00 og fá afhentar stundaskrár, fartölvur og önnur tilheyrandi gögn.  

Þroskaþjálfa vantar í leikskólann Klettaborg

Leikskólinn Klettaborg í Borgarnesi auglýsir eftir þroskaþjálfa frá 1. september 2010. Um er að ræða 68,75% stöðu, vinnutími kl. 10.00-16.00 (30 mín. matarhlé). Leikskólinn Klettaborg er 3ja deilda leikskóli fyrir börn frá 18 mánaða – 6 ára. Megináhersluatriði leikskólans eru samskipti, skapandi starf og nám án aðgreiningar. Nauðsynlegt er að umsækjendur búi yfir jákvæðni, færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, sjálfstæði …

Nýr samningur um sorphirðu

Föstudaginn 6. ágúst síðastliðinn var undirritaður verksamningur milli Akraneskaupstaðar, Borgarbyggðar, Hvalfjarðarsveitar og Skorradalshrepps annars vegar og Íslenska Gámafélagsins ehf. hins vegar, um sorphirðu, rekstur móttökustöðva og ráðstöfun þess sorps sem til fellur. Samningurinn er undirritaður með fyrirvara um endanlega staðfestingu sveitarstjórna. Samningurinn sem er til fimm ára tekur gildi 1. september næstkomandi og rennur út 31. ágúst 2015. Þó er …

Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir matráði

Matráð vantar í 50% stöðu við Grunnskóla Borgarfjarðar, Hvanneyrardeild næsta skólaár. Allar nánanri upplýsingar veitir skólastjóri Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir í síma 847-9262/430 1504, netfang: inga@varmaland.is eða Steinunn Fjóla Benidiktsdóttir deildarstjóri sími 437-0009 / 8477-725, netfang: fjola@gbf.is.  

Leikskólakennara vantar á leikskólann Hnoðraból í Reykholtsdal

Við leikskólann Hnoðraból í Reykholtsdal er laus staða leikskólakennara frá og með 23. ágúst n.k. Um er að ræða fulla stöðu leikskólakennara.   Leikskólinn Hnoðraból er einnar deildar leikskóli. Þar eru að jafnaði 15-20 börn á aldrinu 18 mánaða til 5 ára og 4-5 starfsmenn.   Menntunar og hæfniskröfur: – Leikskólakennaramenntun – Færni í mannlegum samskiptum – Sjálfstæð vinnubrögð – …

Umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar 2010

Íbúar Borgarbyggðar eru minntir á að senda inn tilnefningar fyrir 10. ágúst um hverjir eigi að þeirra mati að hljóta umhverfisviðurkenningarnar í ár. Dreifibréf var sent út til allra íbúa fyrir tæpum tveimur vikum síðan þar sem fram komu frekari upplýsingar. Það dreifibréf má einnig nálgast hér.   Hér má sjá hverjir hafa hlotið viðurkenningarnar undanfarin ár.  

Glæsilegu unglingalandsmóti í Borgarnesi lokið

Um síðustu helgi fór Unglingalandsmót Ungmennafélags Íslands fram í Borgarnesi. Undirbúningur fyrir mótið var stuttur og snarpur, en mótshaldar höfðu aðeins rúmt hálft ár til undirbúnings. Allur undirbúningar gekk afar vel, enda markviss og vel skipulagður af unglingslandsmótsnefnd og starfsmönnum mótsins. Mótshaldið sjálft fór fram í blíðskaparveðri sem skapaði frábæra umgjörð um mótið og það var afar ánægjulegt að heyra …