Borgarbyggð tók þátt í þróunarverkefni skólaárið 2025–2026 um snemmtæka íhlutun með áherslu á málþroska og læsi barna. Verkefnið var unnið í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og var leitt af Katrínu Ósk Þráinsdóttur, Signýju Gunnarsdóttur og Tinnu Sigurðardóttur.
Markmið verkefnisins var að efla mál, tal, boðskipti og læsi barna, draga úr málþroskavanda og fyrirbyggja lestrarörðugleika.
Áhersla var lögð á að styrkja hæfni starfsfólks til að beita markvissri íhlutun í daglegu starfi, skýra verkferla og bæta nýtingu málörvunarefnis í leikskólanum. Við bjuggum svo til handbók sem tekur mið af starfsháttum og stefnu skólans.