Menningarsjóður Borgarbyggðar auglýsir eftir umsóknum

Menningarsjóður Borgarbyggðar auglýsir nú eftir umsóknum um styrki. Markmið sjóðsins er að efla og styðja við menningarlíf í Borgarbyggð, með sérstakri áherslu á grasrót og frumkvæði í menningu. Með umsókn skal fylgja greinargerð um verkefnið ásamt sundurliðaðri kostnaðaráætlun. Styrkþegar úr fyrri úthlutunum eru minntir á að skila inn skýrslu um framgang og lok verkefna áður en sótt er um á …

Virkniþing Borgarbyggðar 2026

Í tilefni af Íþróttaviku Evrópu (Beactive) boða Borgarbyggð og Ungmennasamband Borgarfjarðar til Virkniþings 2026 í Hjálmakletti þar sem íbúum gefst tækifæri til að kynna sér það fjölbreytta íþrótta-, tómstunda- og virknistarf sem í boði er í Borgarbyggð fyrir börn, ungmenni og fólk á öllum aldri. Öllum þeim sem standa að íþrótta-, tómstunda- eða annars konar virknistarfi í Borgarbyggð er boðið …

Nýtt ungmennaráð Borgarbyggðar hefur tekið til starfa

Nýtt ungmennaráð Borgarbyggðar fyrir starfsárið 2026-2027 hefur tekið til starfa. Fyrsti fundur ráðsins var haldinn föstudaginn 28. ágúst þar sem fráfarandi og nýkjörið ráð komu saman. Borgarbyggð vill færa fráfarandi ungmennaráði innilegar þakkir fyrir vel unnin störf og mikilvægt framlag til málefna ungs fólks í sveitarfélaginu. Ungmennaráð Borgarbyggðar gegnir mikilvægu hlutverki sem samráðsvettvangur ungs fólks og sveitarfélagsins. Hlutverk ráðsins er …

Þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um að­ild­ar­við­ræð­ur við ESB 

Við þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir:  Borgarneskjördeild í Hjálmakletti í Borgarnesi  Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Gljúfurár, á Hvanneyri og Andakíl.  Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00.     Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu  Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár.  Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00.     Þinghamarskjördeild …

Hlaðan vígð

Í gær fór fram hátíðleg vígsluathöfn á nýju fjölnota íþróttahúsi Borgarbyggðar. Vel var mætt og mátti greinilega sjá að gleðin var allsráðandi þegar húsið var formlega tekið í notkun. Með tilkomu hússins skapast nýir og fjölbreyttir möguleikar til íþrótta-, æskulýðs- og frístundastarfs í sveitarfélaginu. Það var því sérstakt fagnaðarefni að geta tekið húsið formlega í notkun og deilt þessum merka …

Útskolun á Grábrók­arveitu

Þriðjudaginn 1. september hefja Veitur útskolun á stofnlögn vatnsveitu frá Grábrók að Borgarnesi til að tryggja eins hreint neysluvatn og kostur er. Áætlað er að vinnan taki 2–3 vikur. Á meðan útskolun stendur yfir má gera ráð fyrir lágum vatnsþrýstingi og jafnvel tímabundnu vatnsleysi hluta úr degi. Útskolunin getur einnig valdið gruggi í vatninu, einkum á ákveðnum svæðum ofarlega í Borgarfirði. …

Skólahald að hefjast í Borgarbyggð

Nú styttist í að grunnskólarnir í Borgarbyggð taki aftur til starfa og spennandi skólaár fram undan hjá starfsfólki, nemendum og fjölskyldum þeirra. Í Grunnskóla Borgarfjarðar fer skólasetning fram á morgun, 25. ágúst Hvanneyri: kl. 9:30 Kleppjárnsreykir: kl. 11:00 Varmaland: kl. 13:00 155 nemendur eru skráðir við Grunnskóla Borgarfjarðar á þessu skólaári en 15 nemendur hefja skólagöngu sína í 1. bekk …

Framkvæmdir hefjast í Bröttugötu

Borgarbyggð, í samstarfi við Veitur og RARIK, hófu í dag framkvæmdir í Bröttugötu. Þar sem lagnir hitaveitu, vatnsveitu, fráveitu og rafveitu verða endurnýjaðar ásamt öllu yfirborði götu og gangstétta. Unnið verður á milli Gunnlaugsgötu og Egilsgötu og er gert ráð fyrir að framkvæmdum ljúki 30. október nk. Hjáleiðir verða settar upp þar sem það á við, en ljóst er að …

Vígluathöfn fjölnota íþróttahúss í Borgarnesi

Í tilefni þess að nýtt fjölnota íþróttahús Borgarbyggðar verður formlega vígt er öllum boðið að koma og fagna þessum merka áfanga sveitarfélagsins, á miðvikudaginn 26. ágúst kl. 17:00. Boðið verður upp á veitingar og skemmtilega dagskrá fyrir gesti, blöðrudýr, andlitsmálning, fjölbreyttar íþróttastöðvar og margt fleira. Gestum gefst því kostur á að prófa fjölbreytta hreyfingu og kynna sér þá möguleika sem …

Malbiksviðgerðir á Vesturlandsvegi- Undir Hafnarfjalli.

Vegagerðin hefur gefið Colas heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir: Sunnudaginn  23. ágúst er stefnt á að sinna malbiksviðgerðum á Vesturlandsvegi- Undir Hafnarfjalli. Einhverjar tafir geta orðið á umferð á meðan framkvæmdum stendur. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 20:00 til 07:00 .   Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og …