Framkvæmdir við Kveldúlfsgötu 24-30

október 9, 2026
Featured image for “Framkvæmdir við Kveldúlfsgötu 24-30”

Borgarbyggð vekur athygli á framkvæmdum fyrir framan fjölbýlishús við Kveldúlfsgötu 24-30 og við opið leiksvæði barna.
Verkið felur meðal annars í sér úrbætur á umferðaröryggi, stígagerð, uppsetningu girðinga, hellulagnir og annan frágang á svæðinu.

Áætlað er að framkvæmdum ljúki innan 4 vikna. Á meðan á verkinu stendur geta orðið tímabundnar truflanir á umferð og aðgengi á svæðinu.
Íbúar og aðrir vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og fylgja merkingum á framkvæmdasvæðinu. Við þökkum fyrir sýndan skilning á meðan á framkvæmdum stendur.


Share: