Söfnun á rúlluplasti 9.-13.nóvember.

Söfnun á rúlluplasti verður vikuna 9.–13. nóvember Mikilvægt um söfnun á þessum dögum Halda þarf öllum litum aðskildum. Plast skal vera vel hreinsað og snyrtilega frá gengið. Ekki má skila plasti í pokum. Aðeins er tekið á móti rúlluplasti. Ekki er sótt plast sem er í lausu eða í gámum. Borgarbyggð hvetur bændur til að fylgja þessum reglum svo söfnunin …

Íbúafundir um mótun þjónustustefnu Borgarbyggðar 2027

Íbúafundir um þjónustustefnu Borgarbyggðar 2027  Borgarbyggð býður íbúum til íbúafunda um þjónustustefnu sveitarfélagsins fyrir árið 2027. Þar gefst íbúum tækifæri til að kynna sér stefnuna, ræða áherslur hennar og koma sjónarmiðum sínum á framfæri.  Hvað er þjónustustefna?  Þjónustustefna er stefna sveitarfélagsins um þá þjónustu sem það hyggst veita í öllum byggðarlögum þess, einkum utan stærstu þéttbýliskjarna. Í henni kemur fram …

Borvinna og sprengingar hefjast við Birkiklett og Húsasmiðjuna.

Vegna framkvæmda við Birkiklett og Húsasmiðjuna stendur nú yfir borunvinna. Stefnt er að því að hefja sprengingar mánudaginn 2. nóvember og er áætlað að þær standi yfir í tvær vikur Jarðvinna er unnin af Borgarverki. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og þökkum fyrir skilninginn.

Borað eftir heitu vatni á Borg á Mýrum

Borað eftir heitu vatni á Borg á Mýrum Veitur hefja borun á rannsóknarholu á Borg á Mýrum í vetur. Staðsetningin var lögð til af sérfræðingum ÍSOR í samvinnu við auðlindasérfræðinga Orkuveitunnar. Framkvæmdir hefjast í október Undirbúningur borplans hefst í október. Þegar borplanið er tilbúið ásamt tengingum við vatn, rafmagn og frárennsli fyrir borvatnið þá verður hægt að flytja borinn á …

Egilsgata verður lokuð mánudaginn 26.október.

Egilsgata verður lokuð mánudaginn 26. október vegna framkvæmda við gatnamót Egilsgötu og Bröttugötu. Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og virða merkingar á meðan á framkvæmdum stendur. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda og þökkum fyrir skilninginn.

Hreinsunarátak í Borgarbyggð haustið 2026

Hreinsunarátak í Borgarbyggð haustið 2026 Borgarbyggð hefur samið við endurvinnslufyrirtækið Hringrás ehf. um söfnun ákveðinna úrgangsflokka í dreifbýli haustið 2026. Í samkomulaginu felst að Hringrás mun sækja heim eftirfarandi flokka íbúum að kostnaðarlausu.   Bílflök og annað almennt brotajárn Ryðfrítt stál og ál Rafgeyma Rafmótora Hjólbarða   Fyrirkomulagið er þannig að íbúar safna úrgangsefni saman á einn stað við heimili …

Vertu með og hafðu áhrif – Íbúafundir um mótun þjónustustefnu Borgarbyggðar

Vertu með og hafðu áhrif   Íbúafundir um mótun þjónustustefnu Borgarbyggðar   Vinna við mótun nýrrar þjónustustefnu Borgarbyggðar stendur yfir og lykillinn að því að stefnan verði farsæl er að íbúar taki virkan þátt í ferlinu. Markmiðið er að móta framtíðarsýn um skilvirka, nútímalega og aðgengilega þjónustu sveitarfélagsins sem taki mið af þörfum og væntingum allra íbúa.  Af þessu tilefni verður efnt …

Viðtalstímar sveitarstjóra

Af gefnu tilefni viljum við benda á að hægt er að bóka viðtal við Unni Brá sveitarstjóra á heimasíðunni Borgarbyggðar. Bókaðu viðtal hjá sveitarstjóra hér

Samkomulag um stækkun athafnasvæðis Steypustöðvarinnar við Engjaás í Borgarnesi undirritað. 

Samkomulag um stækkun athafnasvæðis Steypustöðvarinnar við Engjaás í Borgarnesi undirritað.  Borgarbyggð og Steypustöðin hafa undirritað samkomulag um stækkun lóðar fyrirtækisins við Engjaás í Borgarnesi. Með samkomulaginu fær Steypustöðin um 3,5 hektara svæði til frekari uppbyggingar og þróunar fyrirtækisins. Á lóðinni hyggst Steypustöðin auka verulega starfsemi sína á næstu árum en til stendur að stækka verksmiðju fyrirtækisins um 5.500 fermetra sem …

Hnoðraból 40. ára

Leikskólinn Hnoðraból á Kleppjárnsreykjum verður með opið hús þriðjudaginn 20.október í tilefni þess að leikskólinn er 40.ára. Öll velkomin 🙂