1. fundur Sveitarstjórnar sameinaðs sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps

1. fundur Sveitarstjórnar sameinaðs sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps fer fram í fundarsalnum Borg í ráðhúsi Borgarbyggðar, fimmtudaginn, 4. júní nk. og hefst kl. 16:00. Hér má sjá dagskrá fundarins: 1. fundur Sveitarstjórnar sameinaðs sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps Streymi frá fundinum má finna hér.

Hreinsunarátak fyrir timbur í dreifbýli

Líkt á síðastliðin ár stendur Borgarbyggð fyrir hreinsunarátaki í sveitarfélaginu. Í júní, nánar tiltekið vikurnar 5.-11. júní og 16.-22. júní verða gámar fyrir timbur aðgengilegir á eftirfarandi stöðum: 5. – 11. júní Bæjarsveit Brautartunga Bjarnastaðir – á eyrinni Síðumúli Lundar 16. – 22. júní Lyngbrekka Lindartunga Eyrin við Bjarnadalsá (Norðurárdalur) Högnastaðir Ef gámar eru að fyllast þá biðjum við ykkur …

Borgarbyggð annast fyrirspurnir vegna Skorradalshrepps

Vegna sameiningar Borgarbyggð og Skorradalshreppur er bent á að allar fyrirspurnir varðandi málefni Skorradalshrepps skulu berast til Borgarbyggðar frá og með mánudeginum 1. júní nk. Hægt er að hafa samband með tölvupósti á netfangið Borgarbyggd@borgarbyggd.is eða í síma 433-7100.

Rafmagnstruflanir í Borgarbyggð dagana 26.–29. maí

Vegna vinnu og viðhalds í aðveitustöð á Vatnshömrum verða tímabundnar rafmagnstruflanir á eftirfarandi svæðum dagana 26. og 27. maí 2026. Hvanneyri – 26. maí Rafmagnslaust verður á Hvanneyri frá kl. 22:00 til kl. 23:00 þriðjudaginn 26. maí. Hvanneyri – 27. maí Rafmagnslaust verður á Hvanneyri frá kl. 22:00 til kl. 23:00 miðvikudaginn 27. maí. Skorradalur – 27. maí Rafmagnslaust verður …

Sólmyrkvagleraugu fyrir börn í Borgarbyggð

Borgarbyggð hefur nú afhent öllum leik- og grunnskólum sveitarfélagsins sérstök sólmyrkvagleraugu í tilefni af almyrkvanum sem verður sjáanlegur á Íslandi þann 12. ágúst 2026. Markmiðið er að tryggja að öll börn í sveitarfélaginu geti fylgst með þessum einstaka náttúruviðburði á öruggan og skemmtilegan hátt. Leik- og grunnskólar Borgarbyggðar dreifa svo gleraugunum til barna á næstu vikum. Almyrkvi á sólu sést …

Framkvæmdir í Bröttugötu

Borgarbyggð í samstarfi við Veitur og Rarik hefja í júní framkvæmdir í Bröttugötu. Þar verða lagnir hitaveitu, vatnsveitu, fráveitu og rafveitu endurnýjaðar ásamt öllu yfirborði á götu og gangstéttum. Áætlað er að vinna hefjist í júní eftir að skóla lýkur og unnið á milli Gunnlaugsgötu og Egilsgötu. Gert er ráð fyrir að vinnu ljúki í október á þessu ári. Hjáleiðir …

Sumarnámskeið Í Borgarbyggð 2026

Skráning er hafin á fjölbreytt og skemmtileg sumarnámskeið fyrir börn í Borgarbyggð. Boðið verður upp á leikja- íþrótta-, leiklistar- og afþreyingarnámskeið með áherslu á útivist, hreyfingu, sköpun og góða samveru yfir sumartímann. Fjölbreytt og mikið úrval spennandi sumarnámskeiða í boði. Námskeiðin eru annarsvegar fyrir börn sem voru að ljúka 4. bekk og eldri og fyrir börn sem voru að ljúka …

Úrslit sveitarstjórnarkosninga 2026 í Borgarbyggð

Sveitarstjórnarkosningar fóru fram 16. maí 2026. Á kjörskrá voru 3.140 kjósendur. Alls voru greidd 2.152 atkvæði og kjörsókn því 68.3%. Auðir atkvæðisseðlar voru 66 og ógildir voru 8. Í sveitarstjórn Borgarbyggðar sitja 9 fulltrúar. Fjórir listar fengu fulltrúa kjörna í sveitarstjórn: A- listi Borgarbyggðarlistinn, 23,5% eða 488 atkvæði- 2 fulltrúar B-listi Framsóknarflokkurinn 25,4% eða 527 atkvæði– 2 fulltrúar D-listi Sjálfstæðisflokkurinn …

Kjörfundir vegna sveitarstjórnarkosninga laugardaginn 16. maí 2026

Við Sveitarstjórnarkosningar laugardaginn 16. maí 2026 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð og Skorradalshrepp sem hér segir: Borgarneskjördeild í Hjálmakletti í Borgarnesi Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Gljúfurár, á Hvanneyri og Andakíl. Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00.   Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár. Kjörfundur hefst kl. …

Samningur um rekstur golfvallarins að Hamri

Í blíðunni við Hamar var s.l. miðvikudag undirritaður samningur milli Borgarbyggðar og Golfklúbbs Borgarness um rekstur golfvallarins að Hamri. Samningur þar að lútandi var samþykktur af sveitarstjórn 16. apríl s.l. Golfvöllurinn er í landi Borgarbyggðar og felur samningurinn í sér að golfklúbburinn sér um rekstur, viðhald og uppbyggingu golfvallarins. Þá er í samningnum fjallað um áherslur Golfklúbbs Borgarness á öflugt …