Karlarnir í skúrnum smíðuðu þessa glæsilegu trébíla og þátttakendur í Öldunni – vinnustofu og hæfingu, gáfu þeim líf og liti. Karlarnir í skúrnum er vettvangur þar sem karlmenn koma saman í notalegu umhverfi. En um er að ræða samstarfsverkefni félagsþjónustu Borgarbyggðar og Öldunnar þar sem hægt er að vinna að sameiginlegum eða persónulegum verkefnum, deila hugmyndum eða bara eiga ánægjulegar …
Barnó 2026 opnar með pompi og prakt í Ólafsvík
Barnamenningarhátíð Vesturlands – Barnó 2026 verður formlega sett í Klifi í Ólafsvík fimmtudaginn 1. október kl. 18:00. Þar verður hátíðinni hleypt af stokkunum með skemmtilegri dagskrá, tónlist, gleði og að sjálfsögðu biluðu stuði! Barnó fer fram víðs vegar um Vesturland og í ár telur dagskráin hvorki meira né minna en 65 fjölbreytt atriði, ætluð börnum og ungmennum frá leikskólaaldri og …
Ungmennaþing Vesturlands 2026 haldið í Borgarnesi
Ungmennaþing Vesturlands var haldið á Hótel Borgarnesi dagana 25. til 27. september 2026 og heppnaðist einstaklega vel, en Borgarbyggð sá um að halda Ungmennaþing Vesturlands þetta árið. Saman komin voru 41 ungmenni víðsvegar að af Vesturlandi til að ræða málefni sem brenna á ungu fólki og móta sameiginlega sýn á framtíð svæðisins. Dagskrá þingsins einkenndist af líflegum umræðum, vinnustofum og …
Lokað vegna rafmagnsleysis
Skrifstofa Borgarbyggðar er lokuð í dag 28.09. 2026 frá kl.14.15 – 15.00 vegna rafmagnsleysis.
Uppbyggingarsjóður er opinn fyrir umsóknir
Uppbyggingarsjóður Vesturlands er nú opinn fyrir umsóknir. Sjóðurinn styður fjölbreytt verkefni á sviði menningar, atvinnuþróunar og nýsköpunar auk þess að veita stofn- og rekstrarstyrki á sviði menningarmála á Vesturlandi. Sjóðurinn er samkeppnissjóður og eru umsóknir metnar út frá þeim markmiðum og áherslum sem koma fram í Sóknaráætlun Vesturlands. Umsóknarfrestur er til 21. október kl. 14:00 og er sótt um í …
Íþróttavika Evrópu „Beactive“ í Borgarbyggð
Dagana 23.-30. september stendur yfir Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport), árlegt hvatningarverkefni sem miðar að því að efla hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl meðal fólks á öllum aldri. Borgarbyggð tekur þátt í verkefninu í samstarfi við UMSB og fjölmargir viðburðir verða í boði vikuna. Í vikunni gefst íbúum kostur á að kynna sér fjölbreytta hreyfingu og íþróttastarf í sveitarfélaginu. Allir …
Stjórnendur Borgarbyggðar efla færni í viðverustjórnun og leiðtogahlutverki
Sem liður í áframhaldandi þróun leiðtogafærni og markvissari viðverustjórnun hjá Borgarbyggð taka allir stjórnendur sveitarfélagsins þátt í vinnustofu undir leiðsögn Helenu Jónsdóttur, klínískum sálfræðingi og sérfræðingi hjá Mental ráðgjöf. Áhersla vinnustofunnar er meðal annars á samræmdan stjórnendatakt, innleiða regluleg innlit, viðverustjórnun og eftirfylgni. Helena fjallar um hvernig styðja megi starfsfólk við farsæla endurkomu til starfa eftir langvarandi fjarveru og hvernig …
Ungmennaþing Vesturlands haldið í Borgarnesi 25.–27. september
Ungmennaþing Vesturlands verður haldið á Hótel Borgarnesi helgina 25.–27. september 2026. Þingið er samstarfsverkefni sveitarfélaga á Vesturlandi, Ungmennaráðs Vesturlands og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og er fjármagnað af Sóknaráætlun Vesturlands. Markmið þingsins er að skapa vettvang þar sem ungt fólk af öllu Vesturlandi getur komið saman, kynnst öðrum ungmennum og tekið þátt í samtali um málefni sem snerta ungt …
Vel heppnuð minningardagskrá Pourquoi Pas?
Minningardagskrá í tilefni þess að 90 ár voru liðin frá hinu hörmulega strandi Pourquoi Pas? fór fram í gær og tókst afar vel. Mikill fjöldi fólks kom saman í Straumfirði, Safnahúsi Borgarfjarðar, Lyngbrekku og á Sögulofti Landnámsseturs Íslands til að minnast skipsins, áhafnarinnar og þeirra sem tengdust þessum örlagaríka atburði. Dagskráin var unnin í samstarfi Borgarbyggðar, Franska sendiráðsins á Íslandi, landeigenda …
Nýr skipulagsfulltrúi
Ásgerður Hafdís Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin í starf skipulagsfulltrúa Borgarbyggðar. Ásgerður er menntaður byggingarfræðingur frá Horsens í Danmörku og er að ljúka meistaragráðu í skipulagsfræði frá landbúnaðarháskóla Íslands. Ásgerður er með góða reynslu af störfum tengdum skipulagsmálum og opinberri stjórnsýslu. Hún hefur tekið þátt í og átt frumkvæði að innleiðingu verkefna tengt skipulagsmálum. Hún hefur t.a.m komið að endurskoðun aðalskipulags, …









