Ert þú að bjóða upp á íþrótta- eða tómstundastarf fyrir börn og ungmenni í Borgarbyggð?

Nú er verið að taka saman framboðsbækling fyrir komandi starfsár og viljum við tryggja að sem flestir aðilar eigi þar sinn stað. Ef þú býður upp á námskeið, æfingar, klúbbastarf eða aðra tómstunir fyrir börn og ungmenni, þá hvetjum við þig til að senda okkur upplýsingar á sonjalind@borgarbyggd.is. Frestur til að senda inn upplýsingar er til og með 17. ágúst nk.

3. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar

3. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar  fer fram í fundarsalnum Borg í ráðhúsi Borgarbyggðar, Digranesgötu 2,  fimmtudaginn, 13. ágúst nk. og hefst kl. 16:00. Hér má sjá dagskrá fundarins: 3. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar Streymi frá fundinum má finna hér.

Sólmyrkvagleði Borgarbyggðar

Í tilefni af einstöku náttúruundri mun Borgarbyggð bjóða íbúum og gestum að eiga góða stund í Skallagrímsgarði þann 12. ágúst næstkomandi þar sem boðið verður upp á tónlist, popp, candy floss og hoppukastala. Því er tilvalið að taka með sér tjaldstóla og teppi og upplifa þessa merkilegu stund saman. Athugið að öllum er frjálst að koma sér fyrir hvar sem …

Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 2026

Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu sem haldin verður þann 29. ágúst 2026, liggur nú frammi í þjónustuveri Ráðhúss Borgarbyggðar, Digranesgötu 2. Athugasemdir varðandi kjörskrá má senda á kosningar@skra.is Kjósendur geta einnig kannað hvar þeir eru á kjörskrá hér Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á kjörstað.

Hvanneyrarhátíð 2026

Um næstu helgi fer fram Hvanneyrarhátíðin á Hvanneyri, um er að ræða grasrótarsamstarfsverkefni á vegum öflugra íbúa á Hvanneyri og nágrenni. Hátíðin í ár er haldin dagana 7. og 8. ágúst nk, þar sem boðið er upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá þennan dag. Allar upplýsingar má finna á hér 

Sumarlokun Ráðhúss Borgarbyggðar 2026

Vegna sumarleyfa verður Ráðhús Borgarbyggðar lokað frá og með 20.júlí til 4.ágúst. Ef erindið getur ekki beðið má á þessum tíma senda tölvupóst á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is Einhver röskun getur orðið á útgáfu reikninga vegna gjalda á vegum sveitarfélagsins á þessum tíma þ.e. reikningar gætu borist aðeins seinna en vant er. Eindagi gjalda/reikninga mun samt sem áður alltaf vera 30 dagar. Síðasti …

Framkvæmdir við Bröttugötu í Borgarnesi

Framkvæmdir við Bröttugötu í Borgarnesi Kæru íbúar, Nú á næstu vikum hefjast framkvæmdir við endurnýjun Bröttugötu í Borgarnesi. Borgarbyggð í samstarfi við Veitur og Rarik standa fyrir framkvæmdinni þar sem endurnýja á lagnir í götunni — fráveitu-, kaldavatns- og hitaveitulagnir ásamt raflögnum — og Borgarbyggð endurnýjar yfirborð götunnar og gangstéttir. Verktaki verksins er Borgarverk ehf. Heimlagnir að einstaka húsum verða …

Söfnun á rúlluplasti

Vegna bilunar á bíl hjá ÍGF tafðist söfnun á rúlluplasti sem átti að fara fram í síðustu viku. Söfnun hófs að nýju dag mánudaginn 13. júlí og verða þeir því á ferðinni að safna næstu daga.  

Átak gegn útbreiðslu kerfils í Borgarbyggð

Átak gegn útbreiðslu kerfils í Borgarbyggð Borgarbyggð hvetur íbúa til að taka höndum saman í sameiginlegu átaki til að stemma stigu við ört vaxandi útbreiðslu kerfils í héraðinu. Á undanförnum árum hefur kerfill dreift sér hratt um svæði í sveitarfélaginu og víða náð fótfestu þar sem hann skyggir á og ryður burt náttúrulegum gróðri. Kerfillinn dreifir sér bæði með fræjum …

Tilnefningar til umhverfisviðurkenninga 2026

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og vel hirtar lóðir og jarðir. Markmiðið er að hvetja íbúa og fyrirtæki til að leggja sitt af mörkum til að fegra umhverfið og efla samkennd í samfélaginu. Nú er opið fyrir tilnefningar í eftirfarandi fimm flokka: Snyrtilegt bændabýli Falleg lóð við íbúðarhús Snyrtileg atvinnulóð Samfélagsviðurkenning – fyrir framúrskarandi framlag til …