
Framundan eru framkvæmdir sem fela í sér sprengingar við Sólbakka 11–15.
Föstudaginn 2. október er áætlað prufuskot um kl. 12.00. Frá mánudeginum 5. október verður gert ráð fyrir tveimur sprengingum á dag næstu daga, kl. 11.30 og 16.00.
Framkvæmdin er á vegum Borgarverk ehf en starfsmenn fyrirtækisins hafa þegar rætt við starfsfólk fyrirtækja næst vinnusvæðinu. Sprengiskotin verða varin með sprengimottum og mælar verða settir upp til að vakta þann titring sem sprengingarnar valda svo standast megi reglugerð.