Lausafjáreign bænda og búaliðs í Borgarfirði á 19. öld Már Jónsson sagnfræðingu fyltur fyrilestur í bókhlöðu Snorrastofu í kvöld, þriðjudaginn 2. desember kl. 20.30. Tilefnið er bókin Hvítur Jökull, snauðir menn, sem Snorrastofa gaf nýverið út í samvinnu við SÖGU jarðvang. Umræður og fyrirspurnir. Allir velkomnir.
Undirbúningur friðlýsingar – íbúafundur á Hvanneyri
Gamli skólinn Gamla bæjartorfan á Hvanneyri – undirbúningur friðlýsingar Landbúnaðarháskóli Íslands og Minjastofnun Íslands hafa ákveðið að hefja undirbúning að friðlýsingu gömlu bæjartorfunnar á Hvanneyri ásamt minjum, flæðiengjum og fitjum á bökkum Hvítár. Friðlýsingin mun taka til gömlu húsana, ástýndar staðarins, mannvistarleifa, garða, minningarmarka í kirkjugarði, jarðræktarminja, flóðgarða og áveitukerfa sem tengdust engjarækt á bökkum Hvítár. Er þetta í fyrsta …
Ályktun vegna Landbúnaðarháskóla Íslands
Á aukafundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar í dag var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóða: Sveitarstjórn Borgarbyggðar lýsir yfir mikilli ánægju með þær tillögur um aukin fjárframlög til Landbúnaðarháskóla Íslands af hálfu ríkisvaldsins sem kynntar hafa verið. Mikilvægt er að tryggja rekstrargrundvöll skólans og efla enn frekar faglegt starf hans sem átt hefur undir högg að sækja vegna fjárskorts undanfarin ár. Landbúnaðarháskólinn er …
Aðalmeðferð hjá Óbyggðanefnd
Aðalmeðferð hjá Óbyggðanefnd hvað varðar mál nr. 2 á svæði 8 vestur, þ.e. Mýra- og Borgarfjarðarsýsla, fer fram á Hótel Hamri í Borgarnesi mánudaginn 01. desember og hefst kl. 13,30. Mál 2 sem nú er til umfjöllunar nær yfir fjalllendi Munaðarness, Selland Stafholtskirkju, jörðina Sanddalstungu, Sanddal (Fellsenda- og Sauðafellsafréttur) og Snjófjöll. Þinghaldið er öllum opið.
FRESTAÐ AÐ KVEIKJA Á JÓLATRÉ
Vegna slæms veðurútlits hefur verið ákveðið að fresta því að kveikja á jólatré Borgarbyggðar sem átti að gera sunnudaginn 30. nóvember. Ný tímasetning verður auglýst síðar.
Skipulagsmál – lýsingar vegna skipulagstillagna
Lýsingar vegna skipulagstillagna fyrir skotæfingasvæðið í landi Hamars og Húsafell – steinharpan. Skotæfingasvæði í landi Hamars Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum þann 14. ágúst 2014 að auglýsa lýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 fyrir Skotæfingasvæði í landi Hamars. Fyrirhugað er að breyta landnotkun svæðis úr landbúnaði í íþróttasvæði. Reið- og gönguleið sem liggur að svæðinu verður skilgreind …
Fjórar grenndarstöðvar verða fjarlægðar fyrir mánaðarmót
Fjórar grenndarstöðvar í Borgarbyggð, sem ekki eru í nálægð við sumarhúsabyggð nema aðgengi sé gott í aðra grenndarstöð skammt frá, verða fjarlægðar á næstu dögum. Þetta eru eftirfarandi stöðvar: -Stöðin við Jörfa. -Stöðin við Hvítárbakka. -Stöðin við Kaldármela. -Stöðin við Síðumúla. -Síðan verður fjarlægður einn af gámunum við Tungulæk. Þá eru enn eftir 22 grenndarstöðvar af þeim 40 …
Íshafsskipalestirnar frá Hvalfirði í seinni heimstyrjöldinni
Í kvöld, þriðjudaginn 25. nóvember mun Magnús Þór Hafsteinsson rithöfundur og blaðamaður flytja fyrirlestur í Snorrastofu um skipalestir þær, sem sigldu á milli Hvalfjarðar og Norðvestur Rússlands í heimsstyrjöldinni síðari sumarið 1941, þegar Þjóðverjar höfðu gert árás á Rússa. Fyrirlesturinn verður í bókhlöðu Snorrastofu og hefst kl. 20.30.
Fræðslukvöld Faxa – Kynbætur og keppnisandi
Fræðslukvöld á vegum fræðslunefndar Faxa verður á Mið – Fossum í kvöld, þriðjudaginn 25. nóvember og hefst kl. 20.00. Þorvaldur Kristjánsson kynbótadómari og kennari við LbhÍ flytur erindið Ganghæfni íslenskra hrossa – Áhrif sköpulags og skeiðgens. Viðar Halldórsson félagsfræðingur fjallar um Viðhorf og árangur – forsendur árangurs einstaklinga og hópa.
Kveikt á jólatré Borgarbyggðar
Kveikt verður á jólatré Borgarbyggðar við hátíðlega athöfn á Kveldúlfsvelli (við Ráðhús) í Borgarnesi sunnudaginn 30. nóvember kl. 17.00. Dagskrá Ávarp Guðveigar Eyglóardóttur formanns byggðarráðs Kór eldri borgara syngur nokkur lög undir stjórn Zsuzsönnu Budai. Jólasveinar koma til byggða og gleðja með söng og skemmtilegheitum. Nemendur níunda bekkjar Grunnskólans í Borgarnesi gefa gestum heitt kakó. Ef veður verður slæmt …