Félagsstarfið hefst 1. september. Dagskráin með hefðbundnu sniði; gler á mánudögum, ýmis handavinna og handverk á þriðjudögum og miðvikudögum og spilamennska á fimmtudögum. Leiðbeinendur þeir sömu og í fyrra; Elfa í glerinu og Karólína í handavinnu / handverki. Munið matinn í hádeginu – panta þarf daginn áður hjá Elínu ( s: 8401525) Áfram verða léttar yogaæfingar í …
Skólasetning
Nú styttist senn í að sumarleyfum ljúki og að skólarnir fyllist af kátum krökkum og kennurum. Skólasetning verður í báðum grunnskólum sveitarfélagsins mánudaginn 24. ágúst, sbr. neðangreinda dagskrá: Í Grunnskóla Borgarfjarðar: Varmaland kl. 10:00. Kleppjárnsreykir kl. 12:00. Hvanneyri kl. 14:00. Í Grunnskólanum í Borgarnesi verður skólinn settur formlega í Borgarneskirkju: 1.-3. bekkur kl. 10:00. 4.-6. bekkur kl. 10:40. 7.-10. bekkur …
Dýrahald í Borgarbyggð
Að gefnu tilefni er rétt að ítreka að ákvörðun um að lóga dýri er alltaf tekin að höfðu samráði við starfsmann Umhverfis-og skipulagssviðs Borgarbyggðar. Hingað til hefur aldrei verið farið með merktan og/eða skráðan heimiliskött til svæfingar til dýralæknis eftir handsömun í Borgarbyggð. Kötturinn sem umræðan snýst um þessa dagana var hvorki merktur, örmerktur né á skrá hjá Borgarbyggð. Samkvæmt …
Köttur í óskilum 2015-08-18
Kettlingur er í vörslu hjá gæludýraeftirliti Borgarbyggðar. Hann var handsamaður á Þórólfsgötu í Borgarnesi og er hvorki merktur eða örmerktur. Þeir sem telja sig þekkja til kattarins á myndinni eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við umhverfisfulltrúa Borgarbyggðar í síma 437-7100 eða í gæludýraeftirlitsmann í síma 892-5044.
Um kattahald
Að gefnu tilefni þá hefur Borgarbyggð ákveðið að endurskoða verkferla við handsömun og meðferð katta. Föngun ómerktra katta skal ávallt auglýsa á heimasíðu Borgarbyggðar. Gefi ekki sig fram eigandi innan sjö sólahringa frá birtingu auglýsingar þá er heimilt að gera aðrar ráðstafanir með vísan til samþykkta um hunda og kattahald í Borgarbyggð frá 2008. Þá hefur verið ákveðið að reyna …
Nýr tölvuumsjónarmaður
Gestur Andrés Grjetarsson hefur verið ráðinn í starf tölvuumsjónarmanns og mun hafa yfirumsjón með tæknimálum, upplýsingakerfum, net- og tölvukerfum Borgarbyggðar. Starf tölvuumsjónarmanns kemur í staðinn fyrir aðra tölvuþjónustu við skóla og stofnanir sveitarfélagsins og er liður í samræmingu þjónustu og hagræðingu á þessu sviði. Gestur hefur lokið ýmsum prófum og vottunum í rekstri tölvu- og netkerfa, hann er með mikla …
Skýrsla sveitarstjóra 13. ágúst
Kolfinna Jóhannesdóttir flutti skýrslu sveitarstjóra á fundi sveitarstjórnar í dag 13. ágúst. Í máli sínu fór hún yfir nokkur þau verkefni sem unnið hefur verið að að undanförnu. Fundargerð sveitarstjórnar er hægt að nálgast á vef Borgarbyggðar. Skýrsluna má nálgast hér.
Ráðning sviðsstjóra fjölskyldusviðs
Anna Magnea Hreinsdóttir Anna Magnea Hreinsdóttir hefur verið ráðin í starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs og mun hafa yfirumsjón með fræðslumálum, félagsþjónustu og íþrótta- og tómstundamálum í Borgarbyggð. Anna Magnea lauk námi í tómstundafræðum frá Göteborgs folkhögskola, Svíþjóð árið 1980, B.Ed-gráðu í leikskólafræðum frá Kennaraháskóla Íslands árið 1999 og meistaraprófi frá sama skóla árið 2003. Árið 2009 lauk hún doktorsprófi í …
Aukin aðsókn í sundlaugarnar í Borgarbyggð
Sundlaugin í Borgarnesi Mikil aukning hefur orðið í aðsókn að sundlaugum Borgarbyggðar í sumar. Í sundlaugina í Borgarnesi hafa komið 15.900 gestir í júlí sem er 30% aukning í samanburði við júlí í fyrra. Aukning í sundlaugina á Kleppjárnsreykjum er yfir 40% þegar júlí mánuður í ár er borinn saman við júlí mánuð í fyrra. Þangað hafa komið 2.400 …
Leikmenn Skallagríms í 5. fl. stráka öttu kappi við stráka frá vinabæ Borgarbyggðar
Liðin saman á góðri stund eftir leik Leikmenn Skallagríms í 5 fl. stráka mættu til leiks á N1 mótinu í byrjun júlí á Akureyri. Svo skemmtilega vildi til að drengirnir öttu kappi við stráka frá Eysturkommuna í Færeyjum en sá bær er einmitt vinabær Borgarbyggðar.