Stuðningsfjölskyldur – stuðningur við börn

september 15, 2015
Við leitum að fólki sem er tilbúið til að gerast stuðningsfjölskylda. Hlutverkið felst í að taka barn/börn inn á heimilið t.d. yfir helgi. Um er að ræða börn með fötlun eða börn sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður.
 
Við leitum einnig að fólki sem er tilbúið til að vera stuðningur við börn / unglinga 3-4 tíma á viku – Hlutverkið felst í t.d. aðstoð við heimanám, en fyrst og fremst uppbyggilegri samveru.
Við leitum að fólki sem er fært um að skapa öruggar aðstæður með hlýju og nærgætni en skýrum mörkum.
 
Þeir sem hafa áhuga vinsamlegast hafi samband við félagsþjónustu Borgarbyggðar sími 433-7100, netföng: hjordis@borgarbyggd.is vildis@borgarbyggd.is gudrunkr@borgarbyggd.is freyja@borgarbyggd.is
 
 

Share: