Í lögum um leikskóla segir „kjósa skal foreldraráð við leikskóla og skal leikskólastjóri hafa frumkvæði að kosningu í ráðið. Í foreldraráði sitja að lágmarki þrír foreldrar. Skal kosning til foreldraráðs fara fram í september á ári hverju og skal kosið til eins árs í senn. Foreldraráð setur sér starfsreglur. Leikskólastjóra ber að starfa með foreldraráði. Leikskólastjóri getur sótt um undanþágu til sveitarfélags um stofnun foreldraráðs ef gildar ástæður eru fyrir hendi, svo sem vegna fámennis í leikskóla“.
Í foreldraráði leikskólans fyrir skólaárið 2025-2026 eru ásamt leikskólastjóra:
- Hafdís Lára Halldórsdóttir
- Erla Katrín Kjartansdóttir
- Ísak Sigurjón Bragason