Í vetur höfum við í Klettaborg tekið þátt í skemmtilegu og lærdómsríku þróunarverkefni með hinum leikskólunum í Borgarbyggð, í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Síðastliðinn fimmtudag var haldin uppskeruhátíð leikskólanna í verkefninu þar sem við deildum reynslu, sýndum afraksturinn og fögnuðum því sem hefur áunnist. Áherslan hefur verið á að efla mál og læsi barna í daglegu starfi – …
Útskrift árgangs 2020
Hátíðleg útskrift fór fram í Hjálmakletti þann 28. maí þegar 14 börn útskrifuðust úr leikskólanum og eru nú að fara að stíga sín fyrstu skref í átt að nýjum ævintýrum í grunnskólanum. Athöfnin var bæði lífleg og skemmtileg, þar sem börnin buðu foreldrum, og aðstandendum upp á fjölbreytta dagskrá. Þau sungu, sögðu brandara og sýndu myndband. Að lokinni dagskrá var …
Opið hús miðvikudaginn 6. maí
Í tilefni af uppskeruhátíðinni OK þá er opið hús í leikskólanum milli kl. 14.00-15.45. Við bjóðum gesti og gangandi að koma og taka þátt í leik og starfi.
Leikskólarnir Klettaborg og Andabær fengu styrk úr Sprotasjóði
Laugardaginn 11. apríl s.l. úthlutaði mennta- og barnamálaráðherra Inga Sæland styrkjum úr Sprotasjóði við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Leikskólinn Klettaborg í samstarfi við leikskólann Andabæ fékk veglega úthlutun úr sjóðnum til vinnslu verkefnisins STEAM og leiðsagnarmat- Þróun námsmenningar. Sprotasjóður styður við þróun og nýjungar í skólastarfi í leik-, grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastigs. Á …
Innrás mauranna
Maurabú í heimsókn Í vikunni höfum við verið með maurabú hér í leikskólanum, sem er hluti af skemmtilegu verkefni þar sem börnin fá að kynnast huldum og undraverðum heimi skordýra. Verkefnið tengist bókinni Matti og Maurún: Hulinn heimur íslenskra maura, sem gefin er út sérstaklega til að fræða börn um maura. Við höfum verið að lesa bókina og skoða hana …
Nafn á nýrri deild í Klettaborg
Eftir áramótin opnaði ný deild hér hjá okkur í Klettaborg. Seinustu vikur hafa börn og starfsmenn unnið að því að finna nafn á nýju deildina. Allar deildir leikskólans bera nöfn staðarheita úr bókum Astridar Lindgren. Í leikskólanum er deildin Sjónarhóll þar sem Lína langsokkur býr, Kattholt þar sem Emil býr og þriðja deildin ber nafnið Ólátagarður þar sem börnin í …
Framkvæmdir hafnar við leikskólann – gámaeining bætir aðstöðu og eykur rými
Við í Klettaborg fögnum því að framkvæmdir eru nú hafnar við að bæta gámaeiningu við leikskólann. Með þessari viðbót er verið að koma til móts við þörf fyrir betri aðstöðu fyrir starfsfólk og börn í leikskólanum. Nýja einingin mun hýsa nýja deild og undirbúningsaðstöðu kennara. Þetta þýðir að börnin fá meira rými til leiks og náms, á meðan starfsfólk fær …
Þróunarverkefnið „Sérðu mig“
Þróunarverkefnið „Sérðu mig“ Skólárið 2024-2025 fékk leikskólinn styrk frá Sprotasjóði til að vinna að þróunarverkefninu “Sérðu mig”. Markmið verkefnisins var að efla þekkingu og fagvitund starfsfólks á mikilvægi leiksins og hvernig hægt er að stuðla að aukinni inngildingu, umburðarlyndi og fjölbreytileika meðal allra barna í gegnum frjálsan leik. Leikur er ekki aðeins skemmtun – heldur er hann kjarninn í námi …
Útskrift árgangs 2019
Þann 15. maí síðastliðinn útskrifuðust yndislegur hópur leikskólabarna sem í haust hefja ný og spennandi kaflaskipti í lífi sínu – grunnskólagönguna. Haldin var hátíðleg útskriftarhátíð þar sem börnin sýndu listir sínar með stolti og gleði. Þau sungu skemmtileg lög frá Barnamenningarhátíðinni, dönsuðu, sögðu brandara sem glöddu alla viðstadda og sýndu flottar fimleikaæfingar. Það var ómetanlegt að sjá þau blómstra og …
OK Barnamenningarhátíð
OK Barnamenningarhátíð í Borgarbyggð er dagana 5.-11. maí og margt skemmtilegt í boði. Á hátíðinni er allri menningu barna fagnað, menningu með börnum og menningu fyrir börn. Sett var upp listasýning í Geirabakaríi þar sem verk eftir leikskólabörn í Borgarbyggð hanga í gluggunum og hvetjum við ykkur til að líta á hana. Þriðjudaginn 6. maí buðum við gestum og gangandi …









