Í áætlunum og skýrslum eru opinberlega birtar upplýsingar varðandi stefnu skólans, endurmat og áætlanir um umbætur á hinum ýmsu þáttum starfsins í Klettaborg. Í ársskýrslum eru upplýsingar um árlega starfsemi leikskólans, áætlanir og niðurstöður innra mats auk þess sem settar eru fram áætlanir varðandi umbætur. Þannig er haldið utan um sögu skólans og þróun starfsins. Við í Klettaborg vinnum að framsæknu og umbótamiðuðu skólastarfi því þannig stuðlum við að stöðugri skólaþróun.