Í dag komu þeir Elli og Fannar frá Björgunarsveitinni Brák og færðu leikskólanum sjúkrakassa. Kassinn er sérstaklega hannaður með þarfir barna í huga og inniheldur búnað sem nýtist vel við minniháttar óhöpp og fyrstu hjálp í leik og starfi. Við þökkum Björgunarsveitinni Brák kærlega fyrir þennan flotta sjúkrakassa❤️🚑
