Nemandi í 1. bekk fékk nýlega afhentan reiðhjólahjálm í gegnum hjálmaverkefni Eimskips og Kiwanishreyfingarinnar á Íslandi.
Eimskip og Kiwanis hafa staðið saman að verkefninu frá árinu 2004 með það að markmiði að efla öryggi barna í umferðinni. Á þeim tíma hafa yfir 120.000 hjálmar verið afhentir börnum um allt land.
Öryggi og forvarnir eru meðal megináherslna Eimskips og er hjálmaverkefnið mikilvægt framlag til að stuðla að öruggri þátttöku barna í umferðinni. Með hjálmanotkun er hægt að draga verulega úr hættu á alvarlegum höfuðáverkum og því er mikilvægt að börn venji sig á að nota hjálm við hjólreiðar og aðra útivist þar sem slíkur búnaður á við.
Við þökkum Eimskipi og Kiwanishreyfingunni kærlega fyrir þessa góðu gjöf og mikilvæga framlag til öryggis barna.
