Forseti sveitarstjórnar, Björn Bjarki Þorsteinsson og sveitarstjóri Gunnlaugur A Júlíusson funduðu fyrir páska með ráðherra sveitarstjórnar – og samgöngumála, Jóni Gunnarssyni. Á þessum fundi komu þeir á framfæri sjónarmiðum Borgarbyggðar varðandi s.k.“bankaskatt“, en þess er krafist að hann verði greiddur út skv. gildandi reglum Jöfnunarsjóðs en ekki skv. nýjum afturvirkum reglum. Ennfremur var til umræðu afleitt ástand vega í Borgarbyggð …
Opnunartímar um páska – Íþróttamiðstöðin í Borgarnesi
Íþróttamiðstöðin Í Borgarnesi verður opin sem hér segir um páskahelgina. Skírdagur 13. apríl opið frá 9-18 Föstudagurinn langi 14. apríl lokað Laugardagur 15. apríl opið frá 9-18 Páskadagur 16. apríl lokað Annar í páskum 17. apríl opið frá 9-18
Nýr félagsmálastjóri
Inga Vildís Bjarnadóttir hefur verið ráðin í starf félagsmálastjóra Borgarbyggðar. Inga Vildís er með meistaragráðu í félagsráðgjöf og diplomapróf í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands. Hún hefur starfað sem félagsráðgjafi hjá Borgarbyggð frá árinu 2011. Fjórar umsóknir bárust um starf félagsmálastjóra. Umsækjendur: Hanna Lára Steinssom félagsráðgjafi Inga Vildís Bjarnadóttir félagsráðgjafi Kristín Þyri Þorsteinsdóttir félagsráðgjafi Svanhvít Péturssdóttir viðskiptafræðingur. Hjördís Hjartardóttir núverandi …
Sumarfjör f. nemendur í 1. – 4. bekk
Sumarfjör 2017 Starfsstöðvar: Borgarnes og Hvanneyri Ferðir frá Varmalandi og Kleppjárnsreykjum Kæru foreldrar/forráðamenn barna í 1.-4. bekk í Borgarbyggð. Skráning er hafin í Sumarfjör sem er sumarnámskeið fyrir 1.-4.bekk. Hver vika í Sumarfjörinu er þematengd. Nánari upplýsingar um dagskrá finnið þið heimasíðu Borgarbyggðar eða umsb.is. Hægt er að kaupa hálfan dag frá 09:00-12:00 eða frá 13:00-16:00 á 4.000 krónur fyrir …
Tökum til 18. – 27. apríl – Hreinsunarátak
Dagana 18. – 27. apríl eru íbúar í Borgarbyggð hvattir til að taka til hendinni og fegra nánasta umhverfi sitt. Skólar, stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar eru hvött til að taka þátt í hreinsunarátakinu á fjölbreyttan hátt. Fyrir annan úrgang sem til fellur við tiltektina er opið á gámastöðinni Sólbakka alla virka daga frá kl. 14:00 – 18:00, á laugardögum frá …
Umsóknir um starf sviðsstjóra umhverfis – og skipulagssviðs
Í mars auglýsti Borgarbyggð eftir umsóknum um starf sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs sveitarfélagsins. Fjórar umsóknir bárust og voru umsækjendur þessir: Hjálmar Andrés Jónsson byggingatæknifræðingur Reykjavík Ottó Ólafsson byggingariðnfræðingur Noregi Tómas Björn Ólafsson rafmagnsverkfræðingur Kópavogi Þorsteinn Birgisson tæknifræðingur Mosfellsbæ Verið er að vinna úr umsóknum.
Götusópun í Borgarnesi
Til íbúa í Borgarnesi Miðvikudaginn 12. apríl verða allar götur í Borgarnesi sópaðar. Íbúar eru beðnir að leggja bílum sínum ekki úti á götu til að tryggja að verkið takist sem best. Umhverfis-og skipulagssvið
Afmælishátíð Lions
Lionsklúbbur Borgarness og Lionsklúbburinn Agla héldu upp á, annars vegar 60 ára, og hins vegar 30 ára afmæli sín s.l. laugardag með veglegum hætti í Hjálmakletti. Við þetta tækifæri færðu klúbbarnir Borgarbyggð að gjöf 10 vandaða setbekki sem komið verður fyrir á jafnmörgum stöðum í þéttbýli Borgarbyggðar. Geirlaug Jóhannsdóttir formaður byggðarráðs þakkaði gjöfina um leið og hún veitt bekkjunum viðtöku …
Skúlagata Bgn. – Framkvæmdir Veitna ohf.
Skúlagata, framkvæmdir Veitna ohf Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar þann 7. apríl sl. samþykkti sveitarstjórn að veita Veitum ohf Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík, kt. 501213-1870, framkvæmdaleyfi vegna endurnýjunar vatns-og fráveitulagna í Skúlagötu Borgarnesi, frá Helgugötu að Egilsgötu. Hér er hægt að sjá teikningar af fyrirhugaðri framkvæmd. Teikningar – Skúlagata endurnýjun FV og KV.pdf (2) Verkinu verður skipt í eftrifarandi verkáfanga með eftirfarandi …
Skógrækt í Einkunnum
Umsjónarnefnd fólkvangsins Einkunna auglýsir eftir áhugasömum aðilum sem áhuga hafa á skógrækt í Einkunnum. Tilvalið verkefni fyrir einstaklinga og hópa Hver aðili fær úthlutað ákveðnu svæði sem hann ber ábyrgð á og sinnir gróðursetningu, uppgræðslu og grisjun eftir því sem þörf er á skv. samþykktri ræktunaráætlun fólkvangsins. Verkefnin eru unnin í samstarfi við umsjónarnefnd fólkvangsins og …








