Börn að hefja leikskóladvöl

Aðlögun barna er hafin í leikskólum Borgarbyggðar. Þegar leikskóladvöl barns hefst er mikilvægt að það gerist smám saman svo barnið verði öruggt í nýju umhverfi og njóti sín sem best.  Í aðlögun kynnist barnið starfsfólki, öðrum börnum og húsnæði leikskólans.  Á aðlögunartímanum eykst öryggi barnsins smám saman og það verður reiðubúið til að taka þátt í starfi leikskólans. Aðlögun er …

Hús Tónlistarskóla Borgarfjarðar – viðhald

Í sumar var unnið að því að skipta um glugga í húsi Tónlistarskóla Borgarfjarðar og að því loknu var húsið málað að utan. Hefur það því tekið stakkaskiptum í útliti enda ekki orðin vanþörf á. Er húsið orðið hið glæsilegasta á 50 ára afmæli skólans sem haldið verður upp á í haust.

Frístundastyrkur

Frístundastyrkur fyrir börn og ungmenni Borgarbyggð minnir á styrki til frístundaiðkunar barna og ungmenna á aldrinum 6-18 ára. Framlagið er kr. 20.000 á ári og er markmið þess að hvetja börn og ungmenni til að taka þátt í frístundastarfi í Borgarbyggð. Hægt er að nýta frístundastyrk í: skipulagt frístundastarf í Borgarbyggð sem stundað er undir leiðsögn þjálfara eða leiðbeinanda samfellt …

Kynningarfundur 23. ágúst kl. 17.00 í Hjálmakletti

Grunnskólinn í Borgarnesi Kynningarfundur 23. ágúst kl. 17.00 í Hjálmakletti Boðað er til fundar um fyrirhugaðar framkvæmdir við endurbætur á skólahúsnæðinu og viðbyggingu. Ráðist verður í verulegar endurbætur á núverandi húsnæði á næstunni ásamt því að hafin verður bygging mötuneytis og salar í viðbyggingu við skólann.   Dagskrá: Núverandi staða húsnæðis Grunnskólans í Borgarnesi Fulltrúi frá Verkfræðistofunni Eflu Áætlun um …

Umferð hrossa um Vallarás

Sett hafa verið upp skilti við Vallarásinn þar sem tekið er fram að umferð hesta um götuna er bönnuð. Í lögreglusamþykkt fyrir Borgarbyggð er kveðið á um að umferð hesta sé bönnuð innan þéttbýlismarka annarstaðar en á merktum reiðvegum nema með sérstöku leyfi eða samkvæmt samþykkt sveitarstjórnar. Þetta bann er áréttað sérstaklega varðandi Vallarásinn vegna þeirrar atvinnustarfsemi sem þar fer …

Sameiginlegir endurmenntunardagar kennara í grunnskólum Borgarbyggðar

Þróunarverkefnið „Saman getum við meira“ fer vel af stað. Kennarar grunnskóla Borgarbyggðar taka þátt í verkefninu sem styrkt er af Sprotasjóði og Endurmenntunarsjóði grunnskóla. Verkefnið hófst veturinn 2016-2017 og beinist að teymiskennslu og sóknarfærum í læsis-, stærðfræði- og náttúrufræðikennslu með það að markmiði að bæta kennslu og árangur nemenda. Einnig að auka fjölbreyttni í kennsluháttum. Verkefnastjóri er Dr. Ingvar Sigurgeirsson, …

Endurgerð gangstétta

Nú er lokið framkvæmdum við endurgerð gangstéttar frá gatnamótum Sæunnargötu og Borgarbrautar upp í gegn um Kveldúlfsvöll sem og gangstétt upp með Ráðhúsinu að Berugötu sem byrjað var á s.l. haust. Í leiðinni var sett hitalögn í bílastæði fyrir fatlaða við Ráðhúsið sem bæta mun stórlega aðgengi fyrir þá sem það þurfa að nota. Það var fyrirtækið Sigurgarðar ehf sem …

Rusl á gámasvæðum

Sveitarfélaginu hafa borist nokkrar ábendingar um slæma umgengni við gámastöðvar í héraðinu. Það ber að þakka að slíkar ábendingar berist því öll viljum við að sé gengið vel um. Sérstaklega hefur slæm umgengni verið áberandi við gámastöðvarnar við Gufuá og Grímsstaði þar sem hrúgað er við gámana allskyns drasli sem þar á ekkert heima. Þar má t.d. nefna málma, raftæki, …

160. fundur sveitarstjórnar Borgarbyggðar

SVEITARSTJÓRN  BORGARBYGGÐAR  FUNDARBOÐ  160 FUNDUR Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Borgarbyggðar fimmtudaginn 10. ágúst 2017 í ráðhúsinu að Borgarbraut 14 í Borgarnesi og hefst kl. 16:00. DAGSKRÁ Skýrsla sveitarstjóra. Fundargerð sveitarstjórnar 8.6., 3.7.                                     (158, 159) Fundargerðir byggðarráðs (15.6,22.6,6.7,20.7,3.8) (418, 419, 420, 421, 422) Fundargerðir fræðslunefndar 13.6.                                        (157) Fundargerðir velferðarnefndar 4.8.                         (74) Fundargerð umhverfis – skipulags …