Hunda- og kattahreinsun 2017

nóvember 22, 2017
Featured image for “Hunda- og kattahreinsun 2017”

Lögbundin hunda- og kattahreinsun verður í Borgarbyggð á eftirtöldum stöðum.

  • Bifröst 29. nóvember í kyndistöðinni kl. 16:00 – 18:00.
  • Borgarnesi 30. nóvember í slökkvistöðinni við Sólbakka.
    • Fyrir hunda með skráningarnr. 1- 300 16:30 -17:30.
    • Fyrir hunda með skráningarnr. 301- 450 17:30 – 19:00
    • Fyrir ketti 19:15 – 20:15.

Gunnar Gauti Gunnarsson annast hreinsunina ofangreinda daga.

  • Hvanneyri 5. desember í slökkvistöðinni kl. 17:00 – 19:00.
  • Reykholti 6. desember í slökkvistöðinni kl. 17:00 – 18:00.
  • Varmalandi 6. desember í húsnæði Björgunarsveitarinnar kl. 18:30 -19:30.

Edda Þórarinsdóttir annast hreinsunina ofangreinda daga

Viðbótardagur fyrir alla sem ekki komast ofangreinda daga:

  • Borgarnesi 11. desember í slökkvistöðinni við Sólbakka kl. 17:00 – 19:00.

Margrét Katrín Guðnadóttir annast hreinsunina.

Samkvæmt lögum um velferð dýra/reglugerð um velferð gæludýra eiga allir hundar, kettir og kanínur að vera örmerkt og skráð í miðlægan gagnagrunn, Dýraauðkenni, www.dyraaudkenni.is.

Skráningarskylda er á öllum hundum og köttum í þéttbýli Borgarbyggðar.

Samkvæmt reglugerð um hollustuhætti nr. 941/2002, 15. kafla, er skylt að ormahreinsa alla hunda 4 mánaða og eldri árlega. Nýgotnar tíkur og 3-4 vikna hvolpar skulu spóluormahreinsaðir sérstaklega skv. leiðbeiningum dýralæknis. Þá er skylt að ormahreinsa alla ketti 4 mánaða og eldri. Ormahreinsun er innifalin í leyfisgjaldi.

Óskráð gæludýr eru velkomin og geta eigendur nálgast skráningargögn á staðnum.

Dýralæknar veita einnig aðra þjónustu á staðnum s.s. bólusetningar, ófrjósemislyf, örmerkingu ofl. Athugið að ekki er hægt að greiða með korti.

Þeir eigendur hunda og katta í þéttbýli Borgarbyggðar sem ekki nýta sér þessa þjónustu þurfa að skila vottorði á skrifstofu Borgarbyggðar fyrir áramót um að dýr þeirra hafi verið hreinsuð annars staðar.

Þá má leita til þeirra dýralækna sem starfa í sveitarfélaginu sem senda staðfestingu um ormahreinsun til sveitarfélagsins.  

Upplýsingar um samþykkt um hunda- og kattahald í Borgarbyggð er að finna á heimasíðu Borgarbyggðar. Einnig er hægt að hafa samband við verkefnastjóra í síma 433 7100 eða gegnum netfangið hrafnhildur@borgarbyggd.is.


Share: