Hundrað ár frá fyrsta bílnum

Ný örsýning hefur verið sett upp í Safnahúsi með fróðleik og ljósmyndum úr lífi Magnúsar Jónassonar, sem eignaðist fyrsta bílinn sem kom í Borgarnes fyrir hundrað árum. Magnús var fæddur árið 1894, á Galtarhöfða í Norðurárdal. Hann fór ungur að heiman til Reykjavíkur og lærði þar á bíl frostaveturinn mikla 1917-1918. Hann lauk prófinu í febrúar 1918 og eignaðist sama …

Laus staða skólastjóra Grunnskóla Borgarfjarðar

Borgarbyggð auglýsir starf skólastjóra Grunnskóla Borgarfjarðar laust til umsóknar. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem býr yfir leiðtogafærni, hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi, framsækna sýn og er tilbúin til að leiða starfsstöðvar skólans inn í framtíðina. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. júní 2018. Grunnskóli Borgarfjarðar er starfræktur á þremur starfsstöðvum, á Hvanneyri, Kleppjárnsreykjum og Varmalandi. Nemendur eru …

Opnun tilboða í viðbyggingu GB

Tilboð í viðbyggingu og endurbætur á Grunnskólanum í Borgarnesi voru opnuð hjá Ríkiskaup þriðjudaginn 6. mars sl. Einungis eitt tilboð barst í verkið. Það var frá Eiríki J. Ingólfssyni húsasmíðameistara í Borgarnesi. Tilboðið hljóðaði upp á 818,5 m.kr. Kostnaðaráætlun verksins var upp á 689,6 m.kr. Tilboðið var því 18,7 % yfir kostnaðaráætlun. Tilboðið verður tekið til skoðunar og lagt mat …

167. fundur sveitarstjórnar

SVEITARSTJÓRN  BORGARBYGGÐAR  FUNDARBOÐ   FUNDUR  Fundur verður haldinn í sveitarstjórn Borgarbyggðar fimmtudaginn 8. mars 2018 í ráðhúsinu að Borgarbraut 14 í Borgarnesi og hefst kl. 16:00.    DAGSKRÁ   Skýrsla sveitarstjóra. Fundargerð sveitarstjórnar 8.2                         (166) Fundargerðir byggðarráðs 15.2., 22.2., 1.3.                         (442, 443, 444) Fundargerð fræðslunefndar 20.2.                         (166) Fundargerð velferðarnefndar 2.3.                         (81) Fjallskilanefnd Borgarbyggðar 5.3 …

Bjargsland II – breyting aðalskipulags, lýsing

Skipulagsauglýsing Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur á 166. fundi sínum þann 8. febrúar 2018, samþykkt að auglýsa eftirfarandi skipulagslýsingu: Bjargsland II í Borgarnesi – Lýsing á breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010 – 2022. Gera þarf breytingu á Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 vegna fyrirhugaðrar breytingar á deiliskipulagi fyrir Bjargsland II, í Borgarnesi, sem samþykkt var í sveitarstjórn Borgarbyggðar 30. nóvember 2006 og auglýst í …

Frístundaleiðbeinandi í Borgarnesi

Frístund í Borgarnesi óskar eftir frístundarleiðbeinanda. Markhópur frístundar eru börn í 1.-4. bekk og er frístund starfrækt eftir hefðbundinn skóladag hjá börnunum. Í boði er hlutastarf þar sem unnið er virka daga frá 13:15-15:30. Hæfniskröfur: Reynsla af vinnu með börnum æskileg Góð færni í mannlegum samskipum Sjálfstæð vinnubrögð Umsækjendur þurfa að sýna fram á hreint sakavottorð. Viðkomandi þarf að geta …

Farsæl efri ár í Borgarbyggð

Samráðsfundir um framtíðarstefnu Borgarbyggðar í málefnum aldraðra voru haldnir í félagsstarfi aldraðra að  Borgarbraut 65a og í félagsheimilinu Brún. Voru fundirnir haldnir í samstarfi Eldri borgara ráðs, Félags aldraðra í Borgarfjarðardölum, Félags eldri borgara í Borgarnesi og nágrenni og Velferðarnefndar Borgarbyggðar. Markmið samráðsfundanna var að leita svara við því hvernig stuðla megi að farsælum efri árum íbúa Borgarbyggðar. Góð mæting …

Leikskólakennari við Andabæ, Hvanneyri

Leikskólinn Andabær, Hvanneyri Leikskólinn Andabær, Hvanneyri auglýsir eftir leikskólakennara. Um er að ræða 100% stöðu á elstu deild leikskólans. Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn til að taka þátt og leiða áfram gott faglegt starf í leikskólanum. Helstu verkefni og ábyrgð leikskólakennara: Meginverkefni: Vinnur samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara að uppeldi og menntun leikskólabarna. Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs undir stjórn …

Engiferskot í sundlauginni í Borgarnesi

Engiferskot í sundlauginni í Borgarnesi Sundlaugin í Borgarnesi býður nú gestum sínum engiferskot. Ávinningur þess að taka inn engiferrót eru margir en hún hefur meðal annars góð áhrif á meltinguna, vinnur á bólgum og eykur blóðflæðið í líkamanum. Þar sem ég æfi mikið og stunda lyftingar þá er ekki óalgengt að upplifa vöðvabólgu eða verki í vöðvum/liðum og vinnur engiferrótin …

Sumarstörf við sundlaugar Borgarbyggðar

Starfsfólk óskast við sundlaugina: í Borgarnesi frá 30. maí til 31. ágúst. á Kleppjárnsreykjum frá 2. júní til 19. ágúst. á Varmalandi frá 2. júní til 19. ágúst. Helstu verkefni: Öryggisgæsla. Afgreiðslustörf. Aðstoð við viðskiptavini. Þrif. Hæfniskröfur: Viðkomandi þarf að hafa náð 18 ára aldri. Standast hæfnispróf sundstaða. Með góða þjónustulund. Vinnufyrirkomulag: 100% starf sem unnið er í vaktavinnu. Unnið …