Fundur um framtíð skólahalds – 2009

Fræðslunefnd Borgarbyggðar stendur fyrir umræðufundi með foreldrum barna í Grunnskóla Borgarfjarðar miðvikudaginn 29. apríl kl. 20.30 í fundarsal Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri. (3. hæð) Umræðuefnið er framtíð skólahalds. Allir foreldrar eru hvattir til að mæta.    

Hallsteinssalur í Safnahúsi

Á sumardaginn fyrsta var opnuð í Safnahúsi Borgarfjarðar í Borgarnesi sýning á verkum úr listaverkasafni hins mæta listvinar Hallsteins Sveinssonar frá Eskiholti. Við þetta sama tækifæri var sal hússins gefið nafn og heitir hann nú Hallsteinssalur. Sýningin er tileinkuð Bjarna Bachmann safnverði sem vann ötullegt starf fyrir söfnin í Borgarfirði um aldarfjórðungsskeið. Verkin eru eftir marga af þekktustu listamönnum landsins …

Sópun á götum og gangstéttum

Nú í vikunni og fram í næstu viku verða gangstéttar og götur sópaðar í Borgarnesi og á Hvanneyri. Íbúar eru vinsamlega hvattir til að leggja bílum sínum þannig að sópun geti gengið greiðlega. Það er fyrirtækið HS-Verktak sem mun annast verkið. Hafa má samband við Halldór hjá HS-Verktak í síma 892-3044 varðandi ábendingar eða nánari upplýsingar um verkið.    

Matjurtagarðar í Borgarbyggð

Íbúum Borgarbyggðar gefst kostur á að taka á leigu matjurtagarða og rækta sitt eigið grænmeti í sumar. Matjurtargarðarnir eru við gróðrastöðina Gleym-mér-ei í Borgarnesi og við gömlu loðdýrahúsin á Hvanneyri. Í boði eru tvær stærðir garða í Borgarnesi og þrjár á Hvanneyri. Leiguverð er á bilinu 1 – 5.000 kr. eftir stærð. Þeir sem hafa áhuga á að leigja sér …

Hreinsunardagar í Borgarbyggð

Nú stendur yfir hreinsunarátak í Borgarbyggð og mun það standa fram yfir miðjan maí. Fyrsta sópun sumarsins á gangstéttum og götum er hafin. Draga þarf töluvert úr þjónustu vegna hreinsunarátaks í ár miðað við fyrri ár og því hvetjum við íbúa og starfsmenn fyrirtækja og stofnana að taka virkan þátt í því að halda sveitarfélaginu hreinu með því að þrífa …

Góð æfing hjá Slökkviliði Borgarbyggðar

Síðastliðinn laugardag var samæfing hjá Slökkviliði Borgarbyggðar. Stöðvarnar þrjár, í Reykholti, á Hvanneyri og í Borgarnesi tóku þátt í æfingunni sem fram fór í Fíflholtum. Á þessum þremur stöðvum eru 41 slökkviliðsmenn skráðir til starfa. Af þeim mættu 34 liðsmenn til æfingarinnar og verður það að teljast mjög góð þátttaka sem sýnir mikinn áhuga og samheldni í slökkviliðinu. Gamla íbúðarhúsið …

Aukasýning á Línu langsokk

  Aukasýning verður á leikritinu um Línu Langsokk eftir Astrid Lindgren, í Brún í Bæjarsveit á Sumardaginn fyrsta 23. apríl kl. 19:00. Miðapantanir hjá Betu í síma 661-2629. Miðaverð kr. 2000.- Takmarkaður miðafjöldi.    

Auglýsing um skipan í kjördeildir í Borgarbyggð

Við alþingiskosningar laugardaginn 25. apríl 2009 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir: Borgarneskjördeild í Grunnskólanum í Borgarnesi Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Gljúfurár. Kjörfundur hefst kl. 09.00. Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu Þar kjósa íbúar í fyrrum Kolbeinsstaðahreppi. Kjörfundur hefst kl. 12.00. Lyngbrekkukjördeild í félagsheimilinu Lyngbrekku Það kjósa íbúar á svæðinu milli Langár og Hítarár. …

Opinn borgarafundur í Menntaskólanum

Opinn borgarafundur með frambjóðendum til alþingis verður haldinn á sal Menntaskóla Borgarfjarðar í kvöld, þriðjudaginn 21. apríl og hefst kl. 20:00. Frambjóðendur úr efstu sætum á listum kjördæmisins flytja framsögur og sitja fyrir svörum. Það eru þau Guðmundur Steingrímsson fyrir Framsóknarflokkinn, Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir fyrir Sjálfstæðisflokkinn, Ragnheiður Ólafsdóttir fyrir Frjálslynda, Guðbjartur Hannesson fyrir Samfylkingu, Guðmundur Andri Skúlason fyrir Borgarahreyfinguna og …

Fundi um framtíð skólahalds frestað!

Umræðufundi með foreldrum barna í Grunnskóla Borgarfjarðar sem vera átti í kvöld í fundarsal Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri er frestað. Fræðslunefnd Borgarbyggðar boðar til fundar á sama stað miðvikudaginn 29. apríl næstkomandi og hefst hann kl. 20.30. Umræðuefnið er framtíð skólahalds. Allir foreldrar eru hvattir til að mæta.