Lögbundin hunda- og kattahreinsun í Borgarbyggð

nóvember 10, 2026
Featured image for “Lögbundin hunda- og kattahreinsun í Borgarbyggð”

Lögbundin hunda- og kattahreinsun í Borgarbyggð yrði sem hér segir:

23. nóv í áhaldahúsi að Sólbakka 4

Fyrir hunda kl. 16:30 19:00.

Fyrir ketti kl. 19:15 – 20:15.

24. nóv Hvanneyri í „gamla BÚT-húsinu“ kl. 16:30 – 19:00.

2. des í áhaldahúsi að Sólbakka 4 kl. 17:00 – 19:00.

Nánari upplýsingar um dýrahald má finna hér 

Þjónustan er gjaldfrjáls fyrir þá sem hafa skráð dýrin hjá sveitarfélaginu og greiða leyfisgjöld.

Bent er á að örmerkjaskráning jafngildir ekki skráningu hjá sveitarfélaginu. Umsókn um leyfi fer í gegnum „Mínar síður“ á heimasíðu Borgarbyggðar
Eigendur óskráðra dýra eru svo hvattir til að skrá hund eða kött hjá sveitarfélaginu. Allir hundar og kettir í þéttbýli skulu vera skráðir og geta óskráð dýr varðað sekt. Þá er handsömunargjald óskráðra dýra talsvert hærra en skráðra dýra samkvæmt gjaldskrá fyrir hunda- og kattahald í Borgarbyggð.
Henti þessar tímasetningar ekki þarf að panta tíma hjá dýralækni, helst í nóvember, og senda staðfestingu á ormahreinsun á ulm@borgarbyggd.is

Nánari upplýsingar um dýrahald má finna hér 


Share: