Vertu með og hafðu áhrif – Íbúafundir um mótun þjónustustefnu Borgarbyggðar

Vertu með og hafðu áhrif   Íbúafundir um mótun þjónustustefnu Borgarbyggðar   Vinna við mótun nýrrar þjónustustefnu Borgarbyggðar stendur yfir og lykillinn að því að stefnan verði farsæl er að íbúar taki virkan þátt í ferlinu. Markmiðið er að móta framtíðarsýn um skilvirka, nútímalega og aðgengilega þjónustu sveitarfélagsins sem taki mið af þörfum og væntingum allra íbúa.  Af þessu tilefni verður efnt …

Viðtalstímar sveitarstjóra

Af gefnu tilefni viljum við benda á að hægt er að bóka viðtal við Unni Brá sveitarstjóra á heimasíðunni Borgarbyggðar. Bókaðu viðtal hjá sveitarstjóra hér

Samkomulag um stækkun athafnasvæðis Steypustöðvarinnar við Engjaás í Borgarnesi undirritað. 

Samkomulag um stækkun athafnasvæðis Steypustöðvarinnar við Engjaás í Borgarnesi undirritað.  Borgarbyggð og Steypustöðin hafa undirritað samkomulag um stækkun lóðar fyrirtækisins við Engjaás í Borgarnesi. Með samkomulaginu fær Steypustöðin um 3,5 hektara svæði til frekari uppbyggingar og þróunar fyrirtækisins. Á lóðinni hyggst Steypustöðin auka verulega starfsemi sína á næstu árum en til stendur að stækka verksmiðju fyrirtækisins um 5.500 fermetra sem …

Hnoðraból 40. ára

Leikskólinn Hnoðraból á Kleppjárnsreykjum verður með opið hús þriðjudaginn 20.október í tilefni þess að leikskólinn er 40.ára. Öll velkomin 🙂  

Framkvæmdir við Kveldúlfsgötu 24-30

Borgarbyggð vekur athygli á framkvæmdum fyrir framan fjölbýlishús við Kveldúlfsgötu 24-30 og við opið leiksvæði barna. Verkið felur meðal annars í sér úrbætur á umferðaröryggi, stígagerð, uppsetningu girðinga, hellulagnir og annan frágang á svæðinu. Áætlað er að framkvæmdum ljúki innan 4 vikna. Á meðan á verkinu stendur geta orðið tímabundnar truflanir á umferð og aðgengi á svæðinu. Íbúar og aðrir …

Umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar 2026

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar veitti í morgun árlegar viðurkenningar til einstaklinga og fyrirtækja sem skara fram úr í umhirðu og fegrun umhverfis í sveitarfélaginu. Nefndin veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og vel hirtar lóðir og jarðir með því markmiði að hvetja íbúa og fyrirtæki til að leggja sitt af mörkum til að fegra umhverfið og stuðla að jákvæðu og samheldnu …

Leikskólinn Ugluklettur tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna 2026

Leikskólinn Ugluklettur hefur hlotið tilnefningu til Íslensku menntaverðlaunanna 2026 fyrir þróunarverkefnið Stilla – hæglátt leikskólastarf. Viðurkenningarráð Íslensku menntaverðlaunanna hefur nú tilkynnt um tilnefningar til verðlaunanna í ár. Tilnefning Ugluklettar er í flokki þróunarverkefna og er hún mikil viðurkenning fyrir það metnaðarfulla starf sem unnið hefur verið að innan leikskólans. Þetta er í sjöunda sinn sem Íslensku menntaverðlaunin eru veitt eftir …

5. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar

5. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar fer fram í fundarsalnum Borg í ráðhúsi Borgarbyggðar, Digranesgötu 2,  miðvikudaginn, 7. október nk. og hefst kl. 16:30. Hér má sjá dagskrá fundarins: 5. fundur Sveitarstjórnar Borgarbyggðar Streymi frá fundinum má finna hér.

Borgarbyggð tekur þátt í sameiginlegu átaki gegn verðbólgu

Starfsgreinasamband Íslands hefur kallað eftir því að ríki, sveitarfélög, verslun og þjónustuaðilar taki höndum saman um verðstöðugleika og skuldbindi sig til að halda verð- og gjaldskrárhækkunum innan 2,5%. Borgarbyggð tekur undir þau markmið og hefur byggðarráð samþykkt að stefnt verði að því að halda almennum hækkunum á gjaldskrám sveitarfélagsins innan þess ramma árið 2027, að því gefnu að ríkisvaldið og …

Opnir fundir um valkosti fyrir Vegamótalínu 2

Landsnet býður til opinna kynningarfunda og vinnustofa vegna valkostagreiningar fyrir Vegamótalínu 2 milli Vatnshamra í Borgarbyggð og Vegamóta á Snæfellsnesi. Hótel Hamar í Borgarnesi: 7. október kl. 20:00 Breiðablik í Eyja- og Miklaholtshreppi: 12. október kl. 20:00 Á fundunum er verkefnið kynnt ásamt þeirri vinnu sem fram undan er. Að kynningu lokinni verður unnið í smærri hópum þar sem þátttakendur …