Fréttabréf Borgarbyggðar 2007

Fréttabréf Borgarbyggðar verður borið í hús í dag. Fréttabréfið kemur út annan hvern mánuð og er þetta því fjórða tölublað ársins. Þar kennir ýmissa grasa; greint er frá því að niðurstöður úr þjónustukönnun liggi fyrir, sagt frá lóðaúthlutun í Bjargslandi og á Hvanneyri, Vistvernd í verki er kynnt og fleira og fleira. Guðbrandur á Staðarhrauni er “fréttaritari úr sveitinni” og …

Þjónustukönnun Borgarbyggðar

Niðurstöður úr þjónustukönnun fyrir Borgarbyggð liggja nú fyrir. Markmið var að kanna þjónustu og fleiri þætti varðandi búsetu í Borgarbyggð. Það var Capacent Gallup sem gerði könnunina fyrir sveitarfélagið, en fyrirtækið hefur gert sambærilegar kannanir í öðrum sveitarfélögum sem auðveldar samanburð. Spurt var um flesta þjónustuþætti og niðurstöðurnar eftir því margvíslegar. Sumir þættir koma afar vel út en aðra þarf …

Leikskólinn Klettaborg – laus störf

Leikskólinn Klettaborg í Borgarnesi auglýsir eftir leikskólakennara og/eða þroskaþjálfa sem fyrst. Um er að ræða tvær stöður: – 100% staða, vinnutími kl. 8.30-17.00 (30 mín. matarhlé) og – 75% staða, vinnutími kl. 11-17.   Leikskólinn Klettaborg er 3ja deilda leikskóli sem leggur megináherslu á samskipti, skapandi starf og nám án aðgreiningar. Nauðsynlegt er að umsækjendur búi yfir færni í mannlegum …

Fréttabréf Tónlistaskólans

Íbúar Borgarbyggðar ættu að hafa fengið fréttabréf Tónlistaskólans til sín í gær, 14. ágúst. Þar er að finna fréttir af starfsemi skólans fyrir komandi vetur. Upplýsingar um innritun, kennslugreinar, kennara og fleira. Fréttabréfið má nálgast á rafrænu formi hér.  

Leikskólinn Ugluklettur opnaði í dag

Leikskólinn Ugluklettur tekur til starfa í dag, 14. ágúst, þegar fyrstu nemendur skólans mættu. Nýi skólinn er þriggja deilda og getur rúmað allt að 70 börn samtímis. Stærð skólans er 501 m² auk 8.256 m² lóðar. Framkvæmdir við skólann hófust í byrjun desember á sl. ári og lauk nú um miðjan ágúst. Byggingarframkvæmdir við húsið stóðu yfir í um átta …

Grunnskóli Borgarness óskar eftir umsjónarkennara

Grunnskólinn í Borgarnesi óskar eftir umsjónarkennara til starfa nú þegar í yngri deild skólans (fámennur umsjónarhópur). Borgarbyggð er sveitarfélag í örum vexti og þar sem unnið er að mörgum spennandi verkefnum. Áhugasamir hafi samband við skólastjóra í síma 437-1229 / 898-4569 (kristgis@grunnborg.is) eða aðstoðarskólastjóra í síma 437-1229 (hilmara@grunnborg.is). Vefur skólans er www.grunnborg.is.   Ljósmynd: Þorgerður Gunnarsdóttir.  

Kennara vantar við Varmalandsskóla

Varmalandsskóli leitar að kennurum í almenna kennslu og heimilisfræðikennslu frá upphafi skólaársins 2007-2008. Í Varmalandsskóla eru um 150 nemendur. Skólinn er staðsettur í einstöku umhverfi um 90 km frá Reykjavík, miðja vegu milli Borgarness og Bifrastar. Starfsemi skólans einkennist af metnaðarfullu og framsæknu skólastarfi, með einkunnarorð skólans gleði, heilbrigði og árangur að leiðarljósi. Varmalandsskóli óskar eftir kraftmiklum og drífandi kennurum …

Vinnuskólanum slitið

Vinnuskóla Borgarbyggðar lauk með miklu húllumhæ á föstudaginn fyrir viku. Síðasta deginum var varið á golfvellinum á Hamri, en fjórir strákar úr vinnuskólanum hafa verið þar við störf í sumar. Þeir tóku að sér að skipuleggja ratleik, púttkeppni og fleira skemmtilegt á lokadeginum fyrir félaga sína úr vinnuskólanum. Þó að mestum tíma unglinganna í vinnuskólanum hafi verið varið í að …

Framkvæmdir við Dalhalla

Stígurinn upp Dalhallann í Borgarnesi hefur tekið stakkaskiptum. Vinnuskólinn Borgarbyggðar hefur lagt nýjan stíg efst í hallanum, auk þess sem borið var ofan í eldri stíg og þökulagt samhliða honum. Þá hefur stiginn efst í Dalhallanum (frá Þórólfsgötu) verið mikið endurnýjaður. Á myndinni eru starfsfólk HS Verktaks og Nýverks við smíði og frágang stigans.  

Starf skólastjóra Laugargerðisskóla

Vegna veikinda er auglýst eftir skólastjóra Laugargerðisskóla. Eins og gefur að skilja þarf viðkomandi að hefja störf sem allra fyrst og umsóknafrestur stuttur, eða til föstudagsins 10. ágúst n.k. Laugargerðisskólinn er staðsettur á Snæfellsnesi. Í skólanum eru um 50 börn úr Eyja- og Miklaholtshreppi og fyrrum Kolbeinsstaðahreppi og er þeim að mestu kennt í 4 bekkjardeildum. Við skólann er starfræktur …