Vortilboð í þolfimisal

Íþróttamiðstöðin Borgarnesi býður upp á vortilboð í þolfimisalnum fyrir þá sem vilja koma sér í form fyrir sumarið og smella sér á kröftug sérnámskeið í þolfimisalnum á sérstöku tilboðsverði. Námskeiðin hefjast strax í næstu viku og er skráning þegar hafin í afgreiðslu.   Námskeiðin eru í LesMills æfingakerfinu BodyPump, BodyCombat og BodyJam.   Sjá nánar hér á auglýsingu um tilboðin. …

Heimsókn frá Svíþjóð í Grunnskóla Borgarness

Unglingar í Óðali Sunnudaginn 19. apríl mun hópur nemenda og kennara frá Tullbroskolan í Falkenberg í Svíþjóð koma í heimsókn í Grunnskóla Borgarness. Falkenberg er vinabær okkar í Svíþjóð. Alls koma 37 manns til landsins og eru svíarnir að endurgjalda heimsókn frá því í haust. Þau verða hér á landi fram til föstudagsins 24. apríl. Dagskrá er hægt að nálgast …

Sýningu Páls að ljúka

    Páll Guðmundsson á Húsafelli varð fimmtugur þann 27. mars síðastliðinn og stendur af því tilefni yfir málverkasýning í Reykjavík Art Gallery. Sýningin heitir Vinir mínir og eru þar samankomnar ýmsar persónur úr lífi Páls. Að öðrum ólöstuðum er Páll einn mesti listamaður héraðsins. Sýning Páls er afskaplega skemmtileg og Borgfirðingar eru hvattir til að láta hana ekki framhjá …

Hundaskítur um allan bæ

Hundaeigendur eru minntir á að þeim ber skylda til að hreinsa upp eftir hunda sína. Það er brot á samþykkt sveitarfélagsins að gera það ekki. Nú þegar vorar og snjóinn tekur upp af gangstéttum og götum kemur í ljós að hundaeigendur eru í hæsta máta kærulausir með að hreinsa upp eftir hundana. Þetta er ákaflega hvimleitt fyrir gangandi vegfarendur og …

Opinn fundur á Bifröst

Föstudagskvöldið 17. apríl verður opinn fundur á Bifröst með fulltrúum þeirra stjórnmálaflokka sem bjóða fram í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Fundurinn verður í Hriflu og hefst klukkan 20:00. Að loknum framsöguerindum hefjast umræður með þátttöku áheyrenda. Allir velkomnir. (fréttatilk.)    

Ekki missa af Töðugjaldaballinu!

Ungmennafélag Reykdæla hefur undanfarið sýnt söng- og gleðileikinn „Töðugjaldaballið -sendu mér sms-“ eftir Bjartmar Hannesson og Hafstein Þórisson við frábærar undirtektir. Bjartmar samdi texta og talað mál en tónlistin er öll eftir Hafstein. Nú eru einungis tvær sýningar eftir, föstudaginn 17. apríl og laugardaginn 18. apríl. Sýningar fara fram í félagsheimilinu Logalandi í Reykholtsdal. Miðapantanir í símum 691 1182 og …

Nemendur Varmalandsskóla skoða Gullpenslana

Rúmlega 30 nemendur í myndlistarvali í Varmalandsskóla komu í heimsókn í Safnahúsið í síðustu viku. Þau fengu leiðsögn um sýninguna Börn í 100 ár af starfsfólki safnahúss, og leiðsögn Helenu Guttormsdóttur um Gullpenslasýninguna. Helena ræddi við nemendur um ýmsar tegundir lista og mismunandi skoðanir á þeim, auk þess sem þau gerðu stutt verkefni um listaverkin. Vonandi höfðu krakkarnir bæði gagn …

Bændur funda með frambjóðendum

Bændur boða til opinna funda í tengslum við alþingiskosningarnar á fjórum stöðum á landinu fimmtudagskvöldið 16. apríl. Öllum framboðum er boðið að senda fulltrúa og ræða um landbúnaðarmál við bændur, starfsfólk í landbúnaðargeiranum og aðra áhugasama fundargesti. Fundirnir hefjast allir kl. 20:30. Fundurinn í þessu kjördæmi verður á Hótel Borgarnesi. Tilvonandi alþingismenn verða spurðir ákveðinna spurninga sem m.a. snúa að …

Vegna könnunar um skólamál og þjónustu

Könnunin sem nú stendur yfir í Borgarbyggð og Skagafirði, þar sem íbúum gefst tækifæri á að tjá skoðun sína á þróun skólamála og þjónustu í sveitarfélögunum, hefur almennt verið vel tekið. Nú eru þeir sem ekki hafa komið því við að svara hvattir til að gera það en góð þátttaka eykur gildi rannsóknarinnar.