Í síðustu viku var efnt til gróðursetningardags á leikskólanum Uglukletti. Foreldrar voru beðnir um að koma eftirmiðdagsstund til að gróðursetja og fínpússa lóðina fyrir veturinn. Foreldrar og velunnarar leikskólans brugðust vægast sagt vel við, milli 90 og 100 manns mættu og tóku til hendinni. Þar voru á ferð, leikskólabörnin sjálf, foreldrar, systkini, ömmur, starfsfólk og makar. Hópurinn plantaði um 150 …
Tómstundaakstur í vetur
Tómstundaakstur úr uppsveitum hófst um leið og annar skólaakstur nú í ágúst. Ekið verður út skólaárið, alla virka daga óháð því hvort það er skóli eða ekki. Tímasetningar: Frá Mánudagar Þriðjudagar Miðvikudagar Fimmtudagar Föstudagar Kleppjárnsreykjum 13:45 15:15 15:15 15:15 13:45 Hvanneyri 14:10 15:40 15:40 15:40 14:10 Varmalandi 13:45 15:15 15:15 15:15 13:45 Vetraráætlun Strætó BS hefst 15. september. …
Íbúafundur um göngustíga í Borgarnesi
Borgarbyggð boðar til íbúafundar í Landnámsetrinu laugardaginn 31. ágúst kl. 10.30. Fundarefnið eru göngustígar í Borgarnesi, m.a. fyrirhugaður stígur frá Kjartansvelli að íþróttamiðstöðinni. Allir íbúar eru velkomnir á fundinn en íbúar við Kjartansgötu og Þorsteinsgötu eru sérstaklega hvattir til að mæta.
Söngtónleikar í Borgarneskirkju
Sópransöngkonurnar Sigríður Ásta Olgeirsdóttir og Sigrún Björk Sævarsdóttir halda tónleika í heimabæjum sínum, Borgarnesi og Stykkishólmi. Fyrri tónleikarnir verða í Borgarneskirkju miðvikudaginn 28. ágúst kl. 20.00 og þeir seinni í Stykkishólmskirkju fimmtudaginn 29. ágúst kl. 20.00. Meðleikari á tónleikunum er Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari. Á tónleikunum verður flutt blönduð dagskrá með þekktum íslenskum sönglögum og óperuaríum. Sigríður Ásta stundaði nám við …
Grunnskólinn í Borgarnesi – ný rennihurð
Í júlímánuði í sumar var lokið við að setja sjálfvirka rennihurð í Grunnskólann í Borgarnesi. Nýja rennihurðin er í innganginum þar sem krakkar á miðstigi skólans ganga um og bætir aðgengi að húsinu til muna. Hurðin var keypt frá Gluggasmiðjunni í Reykjavík og sá fyrirtækið jafnframt um uppsetningu hennar.
Hundur í óskilum 08-25
Svartur og hvítur Border Collie hundur hefur verið í vörslu gæludýraeftirlits Borgarbyggðar frá því í síðustu viku. Hann var handsamaður fyrir utan Hótel Borgarnes. Hann er ómerktur, hvorki með ól né örmerki. Telji sig einhver eiga þennan hund er sá vinsamlegast beðinn að hafa samband við skrifstofu Borgarbyggðar í síma 433-7100 og eftir lokun skiptiborðs í síma 868-0907.
Starfsfólk íþróttamiðstöðvar í námsferð
Starfsfólk íþróttamiðstöðvarinnar í Borgarnesi hefur fengið styrk úr mannauðssjóði Kjalar til að fara í náms- og kynningarferð. Farið verður til í fjögurra daga ferð til Berlínar og lagt af stað fimmtudaginn 29. ágúst. Þar munu þau skoða sundlaugar, fjölnota íþróttahús og ólympíuleikvang. Veglegur styrkur fékkst úr sjóðnum til ferðarinnar en Kjölur er stéttarfélag starfsmanna íþróttamiðstöðvarinnar. Íþróttahúsið verður opið eins og …
Sveitarstjórnir funda á Arnarvatnsheiði
Sveitarstjórnir Borgarbyggðar og Húnaþings vestra komu saman til fundar í skálanum í Álftárkróki á Arnvatnsheiði nýverið. Einnig sat Snorri Jóhannesson frá Sjálfseignarstofnunni um Arnarvatnsheiði fundinn. Á fundinum voru rædd ýmis sameiginleg hagsmunamál sem snúa að Arnarvatnsheiði. Má þar nefna samgöngur, skipulagsmál, veiði og ferðaþjónustu, landbúnaðarmál og þjóðlendumál. Fundurinn var afar gagnlegur og voru aðilar sammála um að skipa hóp sem …
Fjallskilaseðlar 2013
Fjallskilaseðlar frá afrétta- og fjallskilanefndum verða eins og í fyrra aðgengilegir á heimasíðunni. Þeir verða settir inn eftir því sem þeir berast. Til að nálgast seðlana er farið inn á starfsemi undir bláu valstikunni á forsíðu heimasíðunnar. Þar til hliðar er farið í landbúnaður og síðan fjallskilasjóðir. Á þeirri síðu er síðan farið inn á fjallskilaseðlar 2013. Þá má einnig …
Afsteypa af Hafmeyjunni í Skallagrímsgarði
Fimmtudaginn 15. ágúst var 100. fundur sveitarstjórnar Borgarbyggðar haldinn í Reykholti. Þar lagði Björn Bjarki Þorsteinsson fram eftirfarandi tillögu: Í tilefni af 100. fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar sem haldinn er í Reykholti 15. ágúst 2013 er lagt til að sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykki að láta gera afsteypu af listaverki eftir Guðmund Einarsson frá Miðdal. Afsteypan yrði síðan sett upp í Skallagrímsgarði næsta …