Allir nemendur og starfsfólk Grunnskólans í Borgarnesi komu saman í íþróttahúsinu á föstudaginn að dansa Vinaliðadansinn. Þessi „gjörningur“ var framinn í tilefni af Degi gegn einelti, sem haldinn var hátíðlegur um land allt. Um 340 manns dönsuðu vinaliðadansinn og settu trúlega „heimsmet í Borgarnesi“ en líklegt …
Sérkennari við Grunnskólann í Borgarnesi
Frá og með 2. janúar næstkomandi vantar sérkennara til starfa í unglingadeild við Grunnskólann í Borgarnesi. Grunnskólinn í Borgarnesi er heildstæður grunnskóli með 289 nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn vinnur samkvæmt Uppbyggingarstefnunni, er Heilsueflandi grunnskóli og Grænfánaskóli. Skólinn hefur á að skipa vel menntuðu og hæfu starfsfólki og stöðugleiki er í starfsmannahaldi. Einkunnarorð skólans eru; sjálfstæði, ábyrgð, virðing og samhugur. …
Gerður Kristný í Snorrastofu
Í kvöld, mánudaginn 11. nóvember kl. 20.30, flytur Gerður Kristný rithöfundur erindi í Bókhlöðu Snorrastofu, sem hún nefnir „Arfur er þarfur. Vangaveltur um Íslendingasögur skrifaðar á servíettu, kaffimál og kálfskinn.“ Að venju verða kaffiveitingar og umræður að fyrirlestri loknum. Allir velkomnir!
100 ár frá víglsu „gamla“ skólans í Borgarnesi
Í frímínútum á fimmta áratugnum Árið 1907 voru fræðslulög sett á Íslandi og tóku þau gildi ári seinna. Samkvæmt þeim var öllum 10 árum börnum skylt að sækja skóla í fjögur ár og áttu þau að vera orðin nokkurn veginn læs og skrifandi þegar þau hófu skólagönguna. …
Dagur gegn einelti
Dagurinn 8. nóvember er helgaður baráttunni gegn einelti í samfélaginu og verður haldinn hátíðlegur í þriðja sinn núna á föstudaginn. Í tengslum við baráttudaginn árið 2011 undirrituðu fulltrúar stjórnvalda, sveitarfélaga, félagasamtaka og opinberra stofnana Þjóðarsáttmála gegn einelti. Hægt er að undirrita hann rafrænt á heimasíðu verkefnisins www.gegneinelti.is. Fólk er hvatt til að kynna sér sáttmálann og undirrita hann. Þá hvetja …
Lítið heitt vatn í dag
Lágur þrýstingur verður á heita vatninu í Borgarbyggð og á Akranesi í dag, fimmtudaginn 7. nóvember frá klukkan 9.30 og fram á kvöld. Í tilkynningu frá OR segir að þetta sé vegna tenginga á aðveituæð Tímaáætlun gerir ráð fyrir að fullt rennsli verði komið á aðveituæðina um kl. 17.00 en verði tafir á verkinu getur það leitt til þess að …
Köttur í óskilum 2013-11-07
Borgarbyggð er með í vörslu sinni ómerktan kött sem afhentur var eftirlitmanni frá íbúa við Böðvargötu þar sem kötturinn hafði gert sig heimakominn undanfarið. Þeir sem telja sig þekkja til kattarins á myndinni eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við skrifstofu Borgarbyggðar í síma 433-7100 eða í verktaka á vegum Borgarbyggðar í síma 892-5044.
Fréttabréf Grunnskólans í Borgarnesi
Fréttabréf Grunnskólans í Borgarnesi, 2. tölublað er komið út. Þar má m.a. lesa um námsverið Klett sem ætlað er nemendum með einhverfu og vinaliðaverkefni sem innleitt verður í skólann í vetur. Einnig eru í bréfinu fréttir úr skólastarfinu það sem af er vetri og fleira. Smellið hér til að lesa fréttabréfið.
Styrktu Rauða krossinn og Unicef á Íslandi
Nemendur í Grunnskóla Borgarfjarðar héldu flóamarkað á dögunum. Ágóðinn af markaðinum var alls 160.000 krónur og ákváðu krakkarnir að öll upphæðin rynni til góðgerðamála. Unicef á Íslandi fékk 80.000 krónur og RKÍ fékk 80.000 krónur. Nemendur höfðu lagt mikla vinnu í að kynna sér ástandið í flóttamannabúðum í Sýrlandi og fengu lánað flóttamannaskýli …
Sundlaugarnar í Borgarnesi – lokað vegna framkæmda
Vegna framkvæmda við sundlaugarnar í Borgarnesi verður útisundlaugin lokuð frá kl. 13.00, fimmtudaginn 7. nóvember. Laugin opnar aftur sunnudaginn 10. nóvember. Heitir pottar verða opnir eftir sem áður. Einnig standa yfir framkvæmdir við innisundlaugina. Vegna þeirra verður lauginni lokað miðvikudaginn 6. nóvember og verður hún lokuð um óákveðinn tíma.