Lions býður þér í blóðsykursmælingu

Alþjóða sykursýskisvarnardagur Lionshreyfingarinnar er á morgun 14. nóvember en mánuðurinn er tileinkaður baráttu Lions gegn sykursýki. Af þessu tilefni er boðið upp á ókeypis blóðsykursmælingar á vegum Lions víðs vegar um landið.   Lionsklúbbarnir í Borgarnesi bjóða upp á blóðsykursmælingu í Hyrnutorgi á morgun, föstudaginn 14. nóvember kl. 15.00-17.00. Mikilvægt er að láta mæla blóðsykurinn reglulega. Fólk er hvatt til …

Blóðþyrstir víkingar og venjulegt fólk

Snorrastofa í Reykholti minnir á fyrirlestur í kvöld, þriðjudaginn 11. nóvember 2014 kl. 20.30. Þar flytur Brynhildur Þórarinsdóttir rithöfundur og dósent við Háskólann á Akureyri fyrirlesturinn, Blóðþyrstir víkingar og venjulegt fólk. Íslendingasögur frá sjónarhóli barna. Brynhildur hefur mjög látið barnabókamenningu til sín taka og m.a. umritað fornsögur í hendur ungra lesenda og þeirra, sem vilja kynna sér þær á aðgengilegan …

Lægri þrýstingur á heita vatninu í dag

Vegna endurbóta á Deildartunguæð verður lægri þrýstingur á heitu vatni hjá notendum veitunnar í dag, þriðjudaginn 11. nóvember til kl. 17.00. Þetta er síðari hluti tengivinnu við Deildartunguæðina, þar sem verið er að endurnýja kafla í henni við Varmalæk í Borgarfirði. Í kuldatíð er ráðlegt að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma …

Símenntunarmiðstöðin – raunfærnimat

Viltu fá starfsreynslu og vel leyst lífsverkefni metin til framhaldsskólaeininga? Raunfærnimat er fyrir þá sem hafa reynslu og þekkingu á ákveðnu sviði án þess að hafa viðurkenningu úr formlega skólakerfinu. Símenntunarmiðstöðin á Vesturlandi býður upp á raunfærnimat: Fyrir leikskólaliða – mat og staðfesting á þekkingu og reynslu af vinnu með börnum. Fyrir félagsliða – mat og staðfesting á þekkingu og …

Vel sótt og skemmtilegt æskulýðsball

Árlegt forvarnar- og æskulýðsball fór fram í Hjálmakletti í síðurstu viku. Ballið er haldið af Húsráði félagsmiðstöðvarinnar Óðals fyrir unglinga í 8.-10. bekk allra grunnskóla á Vesturlandi. Ballið sem nú var haldið í 24. skipti, fór einstaklega vel fram og voru krakkarnir til fyrirmyndar. Margir vestlendingar kannast vel við þessa dansleiki og eiga góðar minningar frá fyrstu alvöru böllum unglingsáranna. …

Borgarbyggð keppir í Útsvari

Lið Borgarbyggðar keppir í þættinum Útsvar á Ruv í kvöld, föstudaginn 7. nóvember. Liðið er skipað sömu einstaklingum og kepptu á síðasta ári en það eru Stefán Gíslason, Eva Hlín Alfreðsdóttir og Jóhann Óli Eiðsson. Liðinu er óskað góðs gengis í kepninni.    

Aðalmeðferð hjá Óbyggðanefnd

Aðalmeðferð hjá Óbyggðanefnd hvað varðar mál nr. 1 á svæði 8 vestur, þ.e. Mýra- og Borgarfjarðarsýsla, fer fram á Hótel Hamri í Borgarnesi mánudaginn 10. nóvember og hefst kl. 9.oo Mál 1 sem nú er til umfjöllunar nær yfir fjalllendi Hraunhrepps, Álftaneshrepps og Borgarhrepps. Þinghaldið er öllum opið.  

Sláturgerð á Kleppjárnsreykjum

Krakkarnir í 10. bekk Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum brettu upp ermar í gær og skelltu sér í sláturgerð. Allir bekkurinn tók þátt og sýndu þau mikinn dugnað og snilldartilþrif við sláturgerðina. Meðfram sláturgerðinni elduðu þau hádegismatinn og buðu samnemendum sínum og starfsfólki skólans upp á tortillur með grænmeti og tilheyrandi. Í dag verður svo að sjálfsögðu glænýtt slátur á borðum …

Gunnar Halldórsson meistari járninganna

Járningadagar fóru fram að Völlum í Ölfusi dagana 25. og 26. október s.l. Þar var einnig haldið Íslandsmót í járningum og kepptu níu járningamenn um Íslandsmeistaratitilinn. Gunnar Halldórsson frá Arnbjörgum á Mýrum sigraði keppnina og varð þar með Íslandsmeistari í járningum annað árið í röð. Myndin var tekin þegar Björn Bjarki Þorsteinsson forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar færði Gunnari blómvönd og hamingjuóskir …

Viðtalstímar sveitarstjórnar

Þriðjudaginn 4. nóvember verða fulltrúar úr sveitarstjórn Borgarbyggðar til viðtals í ráðhúsinu að Borgarbraut 14 í Borgarnesi frá kl. 16,00 – 18,00. Íbúar eru hvattir til að nota þetta tækifæri til að ræða málin við sveitarstjórn. Heitt á könnunni.   Sveitarstjórn Borgarbyggðar