Við á Hnoðrabóli erum mjög stolt af því að hafa flaggað grænfánanum þrisvar sinnum.
Árið 2009 varð Hnoðraból skóli á grænni grein og hóf vinnu við að stíga skrefin sjö til að fá að flagga grænfánanum. Grænfáninn er alþjóðleg viðurkenning sem staðfestir góðan ásetning og virkni í umhverfisverndarstarfi.
Árið 2014 flögguðum við svo grænfánanum í fyrsta sinn.
Textinn hér að neðan er fenginn af vef Landverndar (landvernd.is) til að skýra betur hvað það að vera skóli á grænni grein þýðir.
Skólar á grænni grein (Eco-schools) er alþjóðlegt umhverfismenntarverkefni sem rekið er af Landvernd á Íslandi. Grænfáninn hefur verið á Íslandi frá árinu 2001. Verkefnið er stærsta umhverfismenntaverkefni í heimi og er haldið úti af samtökunum Foundation for Environmental Education.
Skólar á grænni grein styðja við umhverfismennt, menntun til sjálfbærni og almennt umhverfisstarf í skólum á öllum skólastigum.
Markmið verkefnisins eru að;
- bæta umhverfi skólans, minnka úrgang og notkun á vatni og orku.
- efla samfélagskennd innan skólans.
- auka umhverfisvitund með menntun og verkefnum innan kennslustofu og utan.
- styrkja lýðræðisleg vinnubrögð við stjórnun skólans þegar teknar eru ákvarðanir sem varða nemendur.
- veita nemendum menntun og færni til að takast á við umhverfismál
Grænfáninn sjálfur er viðurkenning eða verðlaun til skóla sem vinna að sjálfbærnimenntun á einhvern hátt. Hver skóli vinnur eftir skrefunum sjö, setur sér markmið og virkir nemendur.
Börnin á Hnoðrabóli eru mjög meðvituð um umhverfi sitt og mikilvægi þess að ganga vel um náttúruna. Þau þekkja vel umhverfissáttmála Hnoðrabóls sem er:
„Við ætlum að gera allt sem er gott fyrir náttúruna með sól í hjarta“
Umhverfisstefnan okkar er svo þessi:
- Innkaup leikskólans verði eins vistvænn og kostur er. Umhverfismerktar vörur og þjónusta er valin umfram aðra.
- Rusl er flokkað.
- Starfsfólk verður frætt um nýjungar í umhverfismálum þegar þær koma fram.
- Notum fjölnota efnivið frekar en einnota.
- Spörum orku eins og hægt er.
- Endurnýtum efni eins og kostur er.
Í umhverfisnefnd Hnoðrabóls eru:
Verkefnastjóri og fulltrúi kennara: Elsa Þorbjarnardóttir
Fulltrúi foreldra: Guðmundur Freyr Kristbergsson
Leikskólastjóri: Sjöfn G. Vilhjálmsdóttir
Börnin í skólahóp
Grænfánamarkmið okkar núna eru þessi:
- Kanna gönguleiðir í nýju umhverfi
- Tengjast nærumhverfinu
- Bæta útikennslusvæði
- Gera grænfánabrúðu
- Skipti- og sölumarkaður Hnoðrabóls á facebook