Pourquoi- Pas?

Í tilefni þess að 90 ár eru liðin frá hinu hörmulega strandi rannsóknarskipsins Pourquoi Pas? Tóku nemendur Grunnskólans í Borgarnesi þátt í að minnast þessa sögulega atburðar.

Nemendur í 5.-7.bekk og 9.bekk kynntu sér sögu skipsins og unnu fjölbreytt verk í myndmennt út frá henni. Úr varð sýning með stórum myndverkum, dúkristum og máluðum krukkum þar sem nemendur túlkuðu söguna á sinn hátt.

Í tengslum við minningardagskránna fengum við góða gesti í skólann sem skoðuðu sýninguna. Gestirnir komu meðal annars frá franska sendiráðinu og afkomendur skipverja á Pourquoi- Pas? Það var ánægjulegt fyrir nemendur að fá að sýna verk sín og taka þannig þátt í stærri minningardagskrá samfélagsins.

Grunnskólinn í Borgarnesi vill leggja sitt af mörkum til að halda minningunni um Pourquoi Pas? á lofti og miðla þessari mikilvægu sögu áfram til komandi kynslóða. Með skapandi verkefnum sem þessum fá nemendur tækifæri til að kynnast sögu nærumhverfisins og halda henni lifandi á sinn hátt.

Við erum stolt af nemendum okkar og þökkum öllum þeim sem komu og skoðuðu sýninguna.