10. – 12.júní sl. sótti starfsfólk Grunnskólans í Borgarnesi námskeið í Uppeldi til ábyrgðar (e. Restituion). Námskeiðið var haldið íBrighton. Meðal fyrirlesara þar voru Joel Shimoji, Elín Yngvadóttir og Heather Campbell. Það voru ríflega 80 manns víða af landinu sem sóttu námskeiðin. Ferðin var öll hin ánægjulegasta. Námskeiðin sérlega vel heppnuð og leiðbeinendur lögðu mikið upp …
Til hamingju með daginn!
Mánudaginn 8. júní fóru fram skólaslit Grunnskólans í Borgarnesi við hátíðlega og gleðilega athöfn. Dagskráin hófst kl. 10:30 með skrúðgöngu nemenda og starfsfólks í fylgd lögreglu niður í Skallagrímsgarð. Þar tóku nemendur þátt í fjölbreyttum og skemmtilegum leikjum og nutu samverunnar. Að leikjum loknum var nemendum og starfsfólki boðið upp á pylsur áður en formleg dagskrá hófst. Þar voru flutt …
Skólaslit 8. júní – Dagskrá
Skólaslit Grunnskólans í Borgarnesi verða mánudaginn 8. júní og eru þau eru tvískipt. Annars vegar eru skólaslit 1 – 9. bekkjar og hins vegar 10. bekkjar. 1 – 9. bekkur Hefðbundin kennsla er frá kl. 8:10 – 10:30 Klukkan 10:30 ganga nemendur fylktu liði í Skallagrímsgarð. Þar fara nemendur í hópa eftir stigum/bekkjum og fara í skipulagða dagskrá. Klukkan 12:30 …
Skólaslit og útskrift 10. bekkjar
Skólaslit Grunnskólans í Borgarnesi fara fram mánudaginn 8. júní að loknum kennsludegi. Nemendur mæta í skólann á hefðbundnum tíma þennan dag. Klukkan 10:30 leggja nemendur í 1.–9. bekk af stað í skrúðgöngu í Skallagrímsgarð þar sem nemendur fara í stutta leiki og grillaðar verða pylsur. Því næst fer fram dagskrá og vitnisburðarblöð verða afhent. Öllum aðstandendum er hjartanlega velkomið að …
Stærðfræðikeppni grunnskóla á Vesturlandi
Þann 17. apríl sl. var hin árlega Stærðfræðikeppni grunnskóla á Vesturlandi haldin hátíðleg. Fjölbrautarskóli Vesturlands stendur fyrir keppninni en í ár tóku 114 nemendur þátt. Nemendurnir komu úr sex skólum af vesturlandi en hlotið var verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum árgangi fyrir sig, þ.e. 8, 9 og 10. bekk Birna Hlín Guðjónsdóttir stærðfræðikennari á unglingastigi Grunnskólans í Borgarnesi …
Opinn dagur
Miðvikudaginn 6. maí var opinn dagur haldinn í Grunnskólanum í Borgarnesi þar sem fjölbreytt og líflegt skólastarf var í forgrunni. Á dagskránni voru meðal annars glæsileg söngatriði og tískusýning í sal skólans sem vöktu mikla ánægju meðal gesta. 🌺 Í bekkjarstofum skólans var unnið að fjölbreyttum verkefnum og gestum gafst tækifæri til að taka þátt í skólastarfinu með nemendum. Nemendur …
Opinn dagur í Grunnskólanum í Borgarnesi
Miðvikudaginn 6. maí verður opinn dagur í Grunnskólanum í Borgarnesi kl. 10:00-13:00. Gestum er boðið að sjá fjölbreyttar og skemmtilegar sýningar sem nemendur skólans hafa unnið að í vetur. Einnig verður kaffisala á vegum 9. bekkjar en allur ágóði rennur í ferðasjóð nemenda. Verið hjartanlega velkomin! Smellið hér til að sjá auglýsingu Smellið hér til að sjá dagskrá
Stóra upplestrarkeppnin 2026
Stóra upplestrarkeppnin haldin í Borgarnesi Þann 21. apríl sl. var Stóra upplestrarkeppnin á Vesturlandi haldin með hátíðlegum hætti í Grunnskólanum í Borgarnesi. Alls tóku fimm skólar þátt í keppninni, þ.e. Auðarskóli, Grunnskóli Borgarfjarðar, Grunnskólinn í Borgarnesi, Heiðarskóli og Reykhólaskóli. Keppendur voru 15 talsins og því hver skóli með 3 fulltrúa. Keppnin var þrískipt og reyndi á fjölbreytta lestrarhæfni nemenda. Í …
Örsaga úr skólastarfi
Þórarinn Torfi smíðakennari gaf út lag um dóttur sína 3 apríl s.l. og er það Eva kona hans sem syngur. Lagið er samið fyrir rúmlega 20 árum og er rólegt og notalegt. En með laginu vantaði mynd til að kynna lagið og þegar Tóti og Anna Sigríður Guðbrandsdóttir myndlistarkennari fóru að spjalla kom upp sú hugmynd að hafa keppni í …
Undankeppni
Undankeppni fyrir Stóru Upplestrarkeppnina hjá 7. bekk fór fram í sal Grunnskólans í Borgarnesi fimmtudaginn 9. apríl. Nemendur 7. bekkjar lásu þar texta úr bókinni Leyndardómur ljónsins eftir Brynhildi Þórarinsdóttur, ásamt því að flytja tvö ljóð að eigin vali. Það stóðu sig allir frábærlega, en tveir keppendur, ásamt einum varamanni voru valdir áfram til að taka þátt í lokakeppninni sem …








