Miðstigsleikar

Miðstigsleikar fóru fram í Borgarnesi fimmtudaginn 17. september og var sannkölluð íþróttaveisla hjá nemendum miðstigs. Keppt var í kúluvarpi, sundi, fótbolta og hlaupi, og tóku nemendur frá fjórum skólum þátt: Grunnskólanum í Borgarnesi, Grunnskóla Borgarfjarðar, Heiðarskóla og Auðarskóla.
Leikarnir voru haldnir við frábærar aðstæður en Hlaðan, nýja íþróttahúsið í Borgarnesi, var nýtt í fyrsta sinn á miðstigsleikum. Mikil ánægja var með aðstöðuna og ljóst að Hlaðan mun nýtast vel fyrir fjölbreytt íþrótta- og skólastarf í framtíðinni.
Nemendur stóðu sig með miklum sóma, tóku þátt af krafti og sýndu góða samvinnu og íþróttamannslega framkomu. Það var gaman að sjá hversu vel nemendur skólanna blönduðust saman og nutu dagsins.
Við þökkum öllum nemendum, starfsfólki og öðrum sem komu að leikunum fyrir frábæran dag og hlökkum til næstu miðstigsleika!