Úti í góða veðrinu á Varmalandi

Nemendur á Varmalandsdeild fóru í skemmtilegan íþróttatíma utandyra þar sem áhersla var lögð á fjölbreytta hreyfingu og útivist. Gengið var í gegnum Toyotaskóg og upp á Laugahnjúk.

Þegar upp á Laugahnjúk var komið var tekið stutt stopp þar sem nemendur nutu náttúrunnar og tíndu  bláber og krækiber áður en haldið var aftur að skólanum.

Markmið tímans var að njóta góða veðursins, hreyfa sig úti og kynna nemendum fjölbreyttar leiðir til að stunda hreyfingu og útivist.