Fimmtudaginn 23. febrúar var þorrablót á Hvanneyri. Allir nemendur tóku þátt í þorrabingó þar sem þeir voru hvattir til að smakka allan þorramatinn. 4. bekkur var búinn að skrifa annál um það sem gerst hafði frá síðasta blóti og lásu upp fyrir gesti. Hefð er fyrir því að nemendur í 5. bekk geri kennaragrín. Þar sem þeir taka hvern kennara fyrir og leika. Þetta skemmtiatriði vakti mikla lukku og var mikið hlegið.