Nemendur í 4. bekk á Varmalandi heimsóttu nýlega leikskólabörnin í leikskólanum Hraunborg. Þar fengu þau tækifæri til að lesa fyrir yngri börnin og taka þátt í hópastarfi með þeim.
Samstarf leik- og grunnskóla er mikilvægt og skapar dýrmæt tækifæri til að efla tengsl á milli skólastiga og stuðla að farsælum skólaskiptum. Svona samverustundir eru bæði lærdómsríkar og skemmtilegar fyrir alla þátttakendur.
Við þökkum kærlega fyrir góðar móttökur og hlökkum til áframhaldandi samstarfs.

